útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég tel endurskoðun þessara laga heilt yfir vera jákvæða en ég hef áhyggjur af því að það sé ekki nægilega mikill skýrleiki, við séum ekki endilega að senda nægjanlega skýr skilaboð, hafa þau varnaráhrif sem við viljum hafa. Mig langar til að taka stutt dæmi. Við vitum að rannsókn máls vegna brota á hegningarlögum getur tekið langan tíma. Málsmeðferð í héraðsdómi getur líka tekið langan tíma. Sama á við um kærumál til Hæstaréttar og svo jafnvel í Landsrétti. Þannig að hvert og eitt mál getur tekið nokkur ár og ef við erum að tala um ítrekuð brot þá erum við að tala um enn lengri tíma. Mér finnst þess vegna vera spurning hvort við séum að ná nægilega vel utan um þetta og hvort við séum að senda nægjanlega skýr skilaboð þegar við erum að horfa á alvarleg brot sem hafa verið framin einu sinni. Þannig að ef markmiðið er að tryggja öryggi landsmanna þá spyr ég hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) hvort við þurfum ekki að gera enn betur og ég bið hæstv. ráðherra um að hugleiða þessi sjónarmið.