útlendingar.
Herra forseti. Það er auðvitað þannig í þessum sal og í þessu samfélagi að það hefur verið tekist mikið á um alþjóðlega vernd, útgáfu dvalarleyfa og útlendingamál í stærra samhengi hlutanna. En ég hygg að það sem sé kjarninn í þessu máli sé það sem flestir flokkar og flestir einstaklingar hafa þó getað fallist á að sé nauðsynlegt skref að taka. Síðan er það auðvitað alltaf spurning um einhverjar útfærslur, hvort það væri hægt að ganga lengra eða þess háttar. Ég hef a.m.k. skilið það þannig að vinna nefndarinnar hafi gengið vel að þessu leyti. Ég held reyndar að þetta mál sé þannig vaxið að það hefði vel verið hægt að samþykkja það fyrr, klára fyrr. Ég svo sem átta mig á því að það á eftir að fara fram aðeins meiri vinna í nefndinni með þetta en alla jafna. Ég held að það sé ágætt að við séum að stíga þetta skref. Þetta er eitt af því fáa sem flokkar á þingi og samfélagið hefur getað sameinast um þegar kemur að útlendingamálum.