157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:06]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að hafa unnið þetta mál og að það sé komið hér inn í þingsal mál sem var byrjað á á síðasta kjörtímabili í dómsmálaráðuneytinu og er liður í því að samræma íslenska löggjöf og löggjöf Evrópuríkja og þá sérstaklega Norðurlandanna. Ég ætla að fagna hér bæði afturköllun verndar hjá þeim sem gerast brotlegir við íslensk lög en ég vil einnig fá að þakka ráðherra fyrir það og þingheimi fyrir að hér er einnig felld mjög mikilvæg séríslensk grein út úr íslenskum útlendingalögum, sem er 2. mgr. 74. gr. útlendingalaga, svokölluð 18 mánaða regla sem finnst ekki annars staðar. Það er löngu tímabært. Hér kemur hv. þm. Sigmar Guðmundsson og talar um að hér hafi verið skiptar skoðanir (Forseti hringir.) í þessum þingsal varðandi útlendingamálin. Það er rétt og það er líka rétt að viðkomandi þingmaður hefur ekki dregið af sér, sérstaklega á síðasta kjörtímabili. Það er jákvætt að finna að það er samstaða (Forseti hringir.) hér í þessum þingsal um að samræma löggjöf okkar við nágrannaríkin.