Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Fyrr í dag sendi ég hæstv. utanríkisráðherra bréf þar sem ég leita svara um hvernig fæðuöryggi birtist sem hluti af nýrri stefnu um öryggis- og varnarmál á Íslandi og hvernig aukin fjárframlög til þessa þáttar eru hugsuð í samhengi við fæðuöryggi. Við höfum séð stóraukin útgjöld til öryggis og varnarmála, 3,4 milljarða nú á milli ára, og í heildina erum við að tala um yfir 10 milljarða kr. Öryggismál snúast nefnilega ekki bara um flugvelli og hafnir. Við erum líka að tala um þessa innviði í landbúnaði, innviði sem eru margir hverjir komnir til ára sinna. En ef við lítum yfir byggðir landsins þá rifjast upp fyrir okkur að fjárhús, fjós, gróðurhús og aðrir innviðir voru margir hverjir byggðir á árunum 1940–1980. Þeir þarfnast endurbóta. En það að fara í endurbætur er dýrt og hefur frekar stuðlað að því að fólk yfirgefi landbúnaðargreinar í stað þess að stíga inn og efla greinina. Þess vegna er mikilvægt að spyrja hvernig við ætlum að nota þessar viðbótarfjárheimildir að hluta. Bréfið mitt varðaði það hvort nota megi þessa auknu fjárfestingu til að hjálpa bændum við að efla matvælaframleiðslu, styrkja innviði og annað sem getur tryggt að greinin okkar verði sterkari og viðnám landbúnaðar aukist heilt yfir. Slíkar spurningar um fæðuöryggi eru kannski ekki plássfrekar í umræðunni en þær skipta máli ef það reynir á. Ef það verða áföll hér á landi þá eru það sannarlega bændur sem munu fæða okkur.