157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Sindri S. Kristjánsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er að mörgu að hyggja í hlutverki varaþingmannsins; setja sig inn í hin fjöldamörgu mál, greina anda og stemningu í nefndarvinnu og samskiptum stjórnar og stjórnarandstöðu. Svara vinum og vandamönnum: Er þetta ekki gaman? Hvernig nennir þú þessu? Og allt þar á milli. Verandi varaþingmaður vona ég að bæði forseti og aðrir hv. þingmenn fyrirgefi mér það að tala um löngu frágengið og samþykkt mál. Mál sem er nauðsynlegt, nýstárlegt og í flestalla staði til mikillar fyrirmyndar og sóma fyrir Alþingi eins og það leggur sig, að mínu mati.

Frú forseti. Borgarstefna 2025–2040 var samþykkt í þessum sal síðastliðið haust. Stefnan miðar að því að efla samkeppnishæfni Íslands með því að styrkja annars vegar höfuðborgarsvæðið sem leiðandi afl og hins vegar Akureyri sem öfluga svæðisborg fyrir Norður- og Austurland. Markmiðið er að skapa sjálfbær borgarsamfélög þar sem innviðir, atvinnulíf og þjónusta styðja við fjölbreytta búsetukosti og nýsköpun. Í texta ályktunarinnar segir svo, með leyfi forseta:

„Loftslagsmál og sjálfbær þróun verði höfð að leiðarljósi við útfærslu á markmiðum borgarstefnu og þeim aðgerðum og framkvæmdum sem stefnan kann að leiða til.“

Virðulegi forseti. Frá sjónarhóli samfélagsins á Akureyri hvet ég hér eindregið til þess að nefndar aðgerðir og framkvæmdir verði settar í gang þegar í stað svo hin góðu og nauðsynlegu fyrirheit borgarstefnu verði að veruleika. Ég kalla á bæjarstjórn, borgarstjórn og ríkisstjórn. Leggjum af stað saman í þetta ferðalag. Látum þetta ekki snúast upp í störukeppni, að hver bíði eftir hinum að taka fyrsta skrefið. Komum þessari stefnu til framkvæmdar. Það græða allir á því.