Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fyrri umræða um samgönguáætlun fór fram 19. og 20. janúar síðastliðinn en sá er hér stendur hafði því miður ekki tök á að taka þátt í umræðunni vegna vinnu á vegum fjárlaganefndar. Mig langar að nota þessar tvær mínútur til að koma örfáum sjónarmiðum sem ég hef varðandi áætlunina á framfæri. Ég mun svo örugglega nýta tækifærið í síðari umræðu um þetta mikilvæga mál. Í mínum huga eru allar samgöngubætur mikilvægar og að mínu mati ber að horfa fyrst og fremst til öryggissjónarmiða þegar lagt er upp með framtíðarsýn í samgönguframkvæmdum. Ég er almennt mjög sáttur við þessa samgönguáætlun og þykir hún sýna metnað til að koma okkur út úr ákveðnum hægagangi og keyra framkvæmdir af stað. Það er mitt mat að mikilvægt sé að setja fyrst af stað framkvæmdir sem þegar er búið að undirbúa eða tryggt að þurfi sem minnstan aðdraganda. Það er að mínu mati skynsamlegt og sýnir einmitt í verki vilja til að keyra hlutina í gang.
Mig langar á þessum stutta tíma sem ég hef hér í dag að nefna nokkur verkefni sem ég tel afar mikilvæg. Sundabraut er sú framkvæmd sem ég tel að verði að komast sem allra fyrst af stað og við verðum að ljúka deilum um hvaða leið sé best. Öxi hefur lengi verið á hugmynda- og undirbúningsstigi og framkvæmdin bætir verulega samgöngur á Austurlandi og ég tel skynsamlegt að flýta þeim framkvæmdum eins og kostur er. Fjarðarheiðargöng eru ein mikilvægasta samgöngubót á Íslandi. Við þekkjum það sem höfum þurft að aka Fjarðarheiðina reglulega og lent þar m.a. í lífsháska. Ég hef alla tíð verið og mun áfram vera stuðningsmaður þessarar framkvæmdar. Að losa um umferðarteppuna á Reykjanesbraut við hringtorgið milli Lækjargötu og Hlíðarbergs í Hafnarfirði og Kaplakrika er umhverfis-, öryggis- og almannaheillamál. Fækkun á einbreiðum brúm og endurnýjun brúa sem eru farnar að eldast, eins og brúin yfir Jökulsá á fjöllum við Grímsstaði, brúin á norðausturvegi yfir Skjálfandafljót og Lagarfljótsbrúin á Héraði, eru verkefni sem geta ekki beðið. Og ég tek undir allar hugmyndir um styttingu og vegbætur um sunnanverða Vestfirði. Mér gefst því miður ekki tækifæri til að ræða hér flugvelli og hafnir, sem eru mér mikið hjartans mál, en geri það síðar.
Virðulegi forseti. Ég treysti því að umhverfis- og samgöngunefnd og við hér í þingsal náum að gera góða samgönguáætlun enn þá betri.