Störf þingsins.
Frú forseti. Ég ætlaði að ræða hér um vextina. Íslenskar fjölskyldur og fyrirtæki glíma við mikinn vaxtakostnað á sama tíma og bankarnir fitna. Offita fjármálamarkaðarins er orðin að heilbrigðisvanda þjóðfélagsins sem leggst með þyngri hætti á yngri kynslóðina en þau okkar sem eldri eru. Ástandið er gjarnan sagt vera afleiðing af fákeppni á fjármálamarkaði sem sumir segja að verði ekki löguð nema með inngöngu í ESB. Þótt svo ólíklega vildi til að þjóðin samþykkti inngöngu í bandalagið þá tæki það nokkur ár og síðan drjúgan tíma eftir það að taka upp evruna. Það þarf því augljóslega að bregðast strax við og án tillits til hugsanlegrar inngöngu í bandalagið og upptöku evrunnar. Beinast liggur við í ljósi fákeppninnar á fjármálamarkaði að stjórnvöld setji Landsbankanum skýra samfélagslega eigendastefnu þar sem hagnaði er stillt í hóf. Vissulega myndi það draga úr arðgreiðslum til ríkisins en heimilin og atvinnulífið myndu að sama skapi njóta lægri vaxta. Það gæti einnig leitt til betri vaxtakjara hjá hinum bönkunum.
Í ljósi þess hvernig staðan er einnig rétt að fara yfir þau tæki sem Seðlabankinn hefur til að eiga við verðbólguna. Reynslan sýnir að við þurfum að veita þeim betri tæki og jafnvel rýmri markmið. Það er mjög mikilvægt að sýna almennt aðhald og gefa almenningi kost á því að taka þátt í því aðhaldi. Það verður gert með öflugra verðlagseftirliti og með því að styrkja það góða starf sem ASÍ hefur sinnt þannig að hin hagsýna húsmóðir hafi raunverulegt val um það hvar hún fær mest fyrir krónurnar sínar.