Störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar að gera að umtalsefni mínu tæknimál og tækjabúnað í þingsal. Það er öllum þingmönnum og starfsfólki ljóst að tækjabúnaður hér er kominn vel til ára sinna og á það til að virka ekki, t.d. í atkvæðagreiðslum verður oft vandræðagangur vegna þess að hnappakerfið virkar ekki. Svo á þetta ljós hérna til að blikka allt í einu og trufla mann í einhverri ógleymanlegri ræðu [Hlátur í þingsal.] og það oft á einhverjum tæknilegum misskilningi byggt. Ég velti þessu fyrir mér af því að ég er nýkominn frá Færeyjum og skoðaði þar þingsalinn í lögþinginu og það er miklu nútímalegri tækjabúnaður þar en hér. Ástæða þess að ég nefni þetta er sú að ég sé að þetta hefur oft valdið óþægindum og misskilningi. Fólk á stundum erfitt með að fylgjast með dagskránni hérna. Við sáum það t.d. í umræðum um fjárlög. Ég kom sjálfur hér upp, eins og margir aðrir, undir vitlausum lið vegna þess að ég var að misskilja hvað væri verið að tala um. Ég er heyrnarskertur og er með alvarlega heyrnarskerðingu. Ég heyri stundum ekki það sem hæstv. forseti segir og á stundum erfitt með að átta mig á dagskránni út af því. Þannig að ég velti fyrir mér: Nú er t.d. hægt að fá kerfi eins og Hearing Loop og Teleslinga sem eru notuð víða á fundum þar sem heyrnarskert fólk getur tengst kerfi í gegnum Bluetooth. Svo finnst mér allt í lagi að það mætti vera hérna skjár, eins og er hérna frammi, þar sem kemur fram um hvað er verið að ræða og hver mælendaskráin er. (Forseti hringir.) Svo er alltaf eitthvert hljóð í ofnunum hérna frammi, eitthvað bank. Það er eins og þeir séu fullir af lofti. Hver á að laga það? Á ég að gera það? — Ég hef lokið máli mínu. [Hlátrasköll í þingsal.]