157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Það er ánægjulegt að Ljósið fær bráðlega stærra húsnæði við Gylfaflöt í Grafarvogi. Samtökin geta þar með stórbætt þjónustu sína fyrir fólk sem greinist með krabbamein. Starfsemin verður flutt formlega í sumar. Þessar bættu aðstæður eru miklar gleðifréttir enda hefur Ljósið hjálpað fjölmörgum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Á 20 árum hefur skjólstæðingum Ljóssins fjölgað úr 200 í 1.500 á ári. Nýtt húsnæði er 1.300 m² með möguleikum á stækkun upp í 1.700 m² í framtíðinni. Austurmiðstöð var áður rekin í húsnæðinu en hún er nú flutt á Bíldshöfða. Ljósið er heildræn endurhæfing fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein. Fólk kemur þangað í persónuleg viðtöl, fjölskylduviðtöl, til að sækja ýmsa fræðslu og námskeið, það kemur í handverk, tækjaþjálfun, hóptímaþjálfun og gönguhópa. Þarna er unnið fjölbreytt starf, bæði fyrir þá sem greinast og eins fyrir aðstandendur. Þessi hópur fer stækkandi, fólki sem greinist fer fjölgandi og við því er verið að bregðast með stækkun þessa frábæra úrræðis. Við erum svo gæfusöm að hafa heilbrigðisráðherra sem er sérfræðingur í málaflokknum, fyrrverandi landlæknir, með langa og djúpstæða reynslu. Það skiptir sköpum að ráðherra skuli vera sérfræðingur í þeim málaflokki sem hann fer fyrir. Heilbrigðisráðherra þekkir hvern krók og kima heilbrigðiskerfisins og nýtir sérfræðiþekkingu sína og reynslu þegar hún tekur ákvarðanir.

Hér er að raungerast eitt af fjölmörgum verkefnum ríkisstjórnarinnar. Á þeim stutta tíma sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur verið við stjórnvölinn hafa fjölmargar breytingar átt sér stað, lagfæringar og betrumbætur, ýmist með lagasetningum eða reglugerðarbreytingum, en það gefur augaleið að ríkisstjórnin er rétt að byrja enda einungis fjórðungur liðinn af kjörtímabilinu.