Störf þingsins.
Forseti. Ég verð eiginlega bara meira og meira rasandi í hvert skipti sem hæstv. ráðherrar mæta í viðtöl til að kasta endalausum steinum úr glerhúsum sínum þegar kemur að verðbólguumræðunni. Það liggur alveg fyrir að hið opinbera hefur lagt línurnar í samfélaginu um útgjaldaaukningu og álögur. Opinber þjónusta hefur hækkað um tæp 30% á einu ári. Hæstv. forsætisráðherra lagði til að við kæmum með ríkisstjórninni í þessa vegferð. Vegferð ríkisstjórnarinnar hefur verið, þvert á loforð, ekkert nema skatta- og gjaldahækkanir. Það er ekki vegferð sem Miðflokkurinn vill vera í.
Hæstv. forsætisráðherra nefnir í viðtölum að hækkun verðbólgu sé einskiptishækkun. Ég held að þessi skilgreining slái ekki á áhyggjur lántakenda sem munu finna fyrir hækkun verðbólgunnar, ekki bara einu sinni, heldur út lánstímann. Svo tekur steininn úr þegar ræddar eru lausnir ríkisstjórnarinnar til að draga úr vægi verðtryggingarinnar. Þá erum við komin á mjög undarlegan stað. Hið opinbera virðist eiga að ákveða hvort og þá hvaða lán fólk á að geta tekið. Sumir fá að taka verðtryggt lán, aðrir ekki. Það virðist eiga að fara eftir tekju- og eignastiganum hvort einstaklingar þurfi eða þurfi ekki lán og einnig hvað fólk greiðir af lánunum. Það er enginn sem tekur lán að fara að greiða meira eða minna heldur en stendur í skilmálum lánasamninga.
Svo kemur hæstv. fjármálaráðherra og reynir að bera blak af útgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar, því að hluti af aukningunni séu verðlagsuppfærslur. Þær voru líka til staðar í fyrra þannig að ég myndi segja að samanburðurinn væri bara ansi góður. En hvernig á að bregðast við? Jú, við þurfum að bíða í heilt ár eftir aðgerðum. Árið 2027 á að reka ríkissjóð með jafnvægi. (Forseti hringir.) Trúir því einhver? Það jafnvægi verður því miður ekki fundið með aðhaldi hjá þessari ríkisstjórn heldur með áframhaldandi skattahækkunum.