Störf þingsins.
Frú forseti. Í dag erum við að fara að samþykkja stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum. Það er virkilega stór áfangi og mikilvægt að reynt var til þrautar að ná sátt milli allra flokka á Alþingi um stefnuna. Það tókst og er niðurstaðan til mikils sóma fyrir Alþingi Íslendinga og ég fagna því að það hafi verið hlustað á mín sjónarmið og sjónarmið Miðflokksins. Með þeirri afstöðu og þeim breytingum sem lagðar eru til í nefndaráliti utanríkismálanefndar verður Miðflokkurinn hluti af samstöðu um þetta mikilvæga mál. Með sameiginlegu áliti utanríkismálanefndar er raunar verið að fella meginatriði þingsályktunartillögu Miðflokksins inn í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra og gerðar til viðbótar nokkrar orðalags- og efnisbreytingar. Stefnan verður í framhaldi órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggisstefnunni okkar, raunhæf og kostnaðarmetin og uppfærð með reglubundnum hætti að höfðu samráði við Alþingi. Við framkvæmd stefnunnar verður horft til fleiri þátta en þingmannaskýrslu utanríkisráðherra sem Miðflokkurinn sagði sig frá vegna þess að hún er takmörkuð. Þar á meðal verður horft til þjóðaröryggisstefnunnar enda nauðsynlegt að stefnan taki til heildarvarna og áfallaþols alls samfélagsins. Þá var gerð sérstakrar öryggislöggjafar þessu tengd mikilvæg. Með breytingunum verður stefnan heildstæðari þar sem hún tekur ekki einungis til hernaðarógna heldur nær hún einnig yfir fjölþáttaógnir. Hefði þessu ekki verið breytt hefði hún tæplega getað kallast stefna í öryggis- og varnarmálum. Þá er Evrópusambandið fellt út úr texta um samstarf enda bætir Evrópusambandið nákvæmlega engu við og hefur ekkert að gera með stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum. Evrópusambandið býr hvorki yfir sjálfstæðri varnargetu né hernaðarlegum innviðum og allt tal um skjól í ESB er bara þvæla. Þá er blásið á landvinninga utanríkisráðherra innan Stjórnarráðsins er varða hugmyndir um nýja einingu við framkvæmd varnarmála sem heyri undir utanríkisráðuneytið og þetta er vel. Niðurstaðan er því uppbyggileg stefnumörkun til framtíðar sem hefur víðtæka samstöðu að baki sér eins og nauðsynlegt er í öryggis- og varnarmálum.