Störf þingsins.
Frú forseti. Farþegaferjan Herjólfur siglir til Þorlákshafnar þessa dagana þar sem dýpið í Landeyjahöfn er ekki nægjanlegt. Vestmannaeyingar þurfa að búa við það á hverjum vetri að Landeyjahöfn þjónar ekki sínum tilgangi og hefur svo verið allt frá því að höfnin var tekin í notkun árið 2010 eða fyrir bráðum 16 árum. Þrátt fyrir að dögum saman nái ölduhæð úti fyrir Landeyjasandi einungis 2 metrum er ekki unnt að sigla í höfnina þar sem dýpkunarskip geta ekki athafnað sig, sem er svo sérstakt athugunarefni. Við skulum muna að í upphafi átti að Herjólfur að komast inn í Landeyjahöfn í allt að 3,5 metra ölduhæð. Flug til Vestmannaeyja er einungis fá skipti í viku yfir hörðustu vetrarmánuðina og lýkur 1. mars næstkomandi samkvæmt samkomulagi við flugrekanda. Fyrir síðustu kosningar mættu allir flokkar á fjölmennan íbúafund í Eyjum þar sem allir flokkar lofuðu, einnig fulltrúi Samfylkingarinnar, fulltrúi Viðreisnar og fulltrúi Flokks fólksins, að tryggja fjármagn til að fara í þrepaskipta rannsókn á fýsileika jarðganga ef viðkomandi kæmist í ríkisstjórn.
Frú forseti. Nú eru þessir flokkar í ríkisstjórn og kostnaður við fyrstu tilraunaborholurnar er 60 milljónir sem þessir flokkar hafa ekki burði til að afla inn til Suðurkjördæmis og svíkja þar með kosningaloforð sitt við Vestmannaeyinga. Talandi um loforð: Þessir flokkar lofuðu því einnig þegar fram komu skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar, sem koma hvað harðast niður á landsbyggðinni og ekki síst Vestmannaeyjum, að með þessum sköttum yrði aukið fé veitt til samgangna á viðkomandi stöðum. En 60 milljónir eru þeim ofviða. Á meðan nema auknar skatttekjur vegna skatta sem lagðir eru á Vestmannaeyinga hundruðum milljóna Vestmannaeyingar hafa með sinni alkunnu framtakssemi stofnað félag um að hrinda þessum rannsóknum af stað og á meðan ypptir ríkisvaldið öxlum og ríkisstjórnarflokkarnir sem lofuðu öllu fögru hlaupa í felur frá loforðum sínum.
Frú forseti. Við þessar aðstæður er það sérstakt fagnaðarefni að ákveðið hefur verið að Miðflokkurinn bjóði fram (Forseti hringir.) í Vestmannaeyjum í komandi kosningum. Það munar um Miðflokkinn bæði á þingi og í sveitarstjórnum.