157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Störf þingsins.

[14:05]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Þessi ríkisstjórn er orðin rúmlega ársgömul. Hún hefur sýnt á spilin og hæstv. forsætisráðherra hefur sýnt á spilin og sjaldan, ef nokkurn tímann, höfum við séð jafn strangheiðarleg kosningasvik og hjá hæstv. forsætisráðherra. Ég vil bara minna á, af því að við erum fljót að gleyma, hvað hæstv. forsætisráðherra sagði við kjósendur í aðdraganda kosninga, fyrir síðustu alþingiskosningar. Þegar talað var um Evrópusambandið þá sagði hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta: Ég tel ekki að þetta sé rétti tíminn til að fara í þá vegferð. Mér finnst mikilvægara að sameina jafnaðarfólk um málefni sem eru í nærumhverfi okkar akkúrat núna og það skiptir máli að fólk viti hvar ég stend í því. Hún sagði líka: Ég veit að það er rosalega mikil vegferð að fara í það ferli og það er vegferð sem þarf að vera mikil samstaða um hjá þjóðinni. Dæmin hafa sýnt að þú gengur ekki svo auðveldlega út úr Evrópusambandinu. Sömuleiðis sagði forsætisráðherra: Þetta er mjög stór breyting fyrir íslenskt samfélag og þú verður að vera með ofboðslega sterkt umboð til að fara í þessa vegferð og þú getur ekki verið bara með einn til tvo stjórnmálaflokka sem leiða það verkefni. Jafnframt sagði forsætisráðherra: Það gerist svo ítrekað þegar það koma háir vextir og mikil verðbólga að fólk vill ganga í Evrópusambandið. Það er ekki til að redda vondu efnahagsástandi. Ég mun ekki bjarga því núna í bráð með því að ganga í ESB. Það eru aðrir hlutir sem hægt er að gera. Að lokum, virðulegi forseti, segir forsætisráðherra: Ég veit að fólk heldur að ég sé að blöffa með þetta. Það er bannað að plata í þessu starfi. (Gripið fram í: Í alvöru?)

Virðulegi forseti. Þetta voru orð hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur. Við sáum það í umræðu um alþjóðamál að nú hefur teningunum verið kastað og nú skulum við taka þessa umræðu.(Forseti hringir.) Ríkisstjórnin og hæstv. forsætisráðherra ákváðu að svíkja þetta kosningaloforð. Ekkert mál. Við skulum þá taka umræðu um hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu og þá skulum við taka það út frá staðreyndum (Forseti hringir.) en ekki einhverju hjali, virðulegi forseti, því að það er óafturkræft, (Forseti hringir.) eins og hæstv. forsætisráðherra vísaði til, ef við myndum asnast þarna inn.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutímann.)