Staða grunnskólanna.
Frú forseti. Í byrjun árs bættist við enn einn menntamálaráðherra þessarar ríkisstjórnar. Hæstv. ráðherra Inga Sæland tók við því embætti og vakti strax athygli með yfirlýsingum sínum sem mér þótti nú margar gefa til kynna að hæstv. ráðherra gerði sér grein fyrir því a.m.k. hverju fólk hefur áhyggjur af varðandi menntakerfið og ekki hvað síst grunnskólana. Hæstv. ráðherra nefndi lestrarkennslu, að það þyrfti að bæta hana og breyta mjög verulega. Samræmd próf þyrfti að taka upp aftur. Einkunnakerfið ætti aftur að verða skiljanlegt. Skóli án aðgreiningar virkaði ekki sem skyldi, einkum vegna þess að það væri óraunhæft að mörg börn sem skilja ekki íslensku frá ólíkum löndum væru sett saman í bekk. Kennaranám var nefnt og mér þótti mjög gott að heyra hæstv. ráðherra nefna, ég held raunar áður en hann tók við embætti, aga og mikilvægi þess að efla aga í íslenskum skólum. Svo mætti líka spyrja hvort ekki megi sleppa einu og öðru sem bætt hefur verið inn í grunnskólana, til að mynda því formi kynfræðslu sem tekur á sig afar sérkennilegar myndir, eins og mig minnir að hæstv. ráðherra hafi einhvern tímann haft orð á áður en hann tók við embætti.
Frú forseti. Það er ekki raunhæft að kennsla í íslenskum grunnskólum fari fram á hundrað mismunandi tungumálum. Í Bandaríkjunum, þúsundfalt fjölmennari þjóð, er sums staðar hægt að fá kennslu á tveimur tungumálum, ensku eða spænsku, en jafnvel svo fjölmennari þjóð dettur ekki í hug að það sé raunhæft að kennsla fari fram á hundrað mismunandi tungumálum í grunnskólum landsins.
En spurningin er þessi og tilefni umræðunnar nú: Hvað ætlar hæstv. ráðherra raunverulega að gera í þessum málum? Ef það eiga að verða breytingar á þessu þá þarf pólitíska forystu. Er hennar að vænta frá hæstv. menntamálaráðherra? Hversu mikil alvara lá að baki yfirlýsingum hæstv. ráðherra þegar hann tók við, til að mynda í Kastljóssviðtali og svo í svörum við fyrirspurn minni skömmu eftir það sem hæstv. ráðherra sagðist hafa 100% stuðning samstarfsflokkanna og forystumanna þeirra í áformuðum breytingum sínum á menntakerfinu?
Svo breyttist þetta aðeins. Í viðtali á Bylgjunni í Sprengisandi skömmu síðar virtist hæstv. ráðherra draga mjög verulega í land og sagðist ekki vera að tala um skólakerfið þegar hann sagði að kerfið hefði brugðist. Það væri eitthvert annað kerfi. Hvaða kerfi er það? Stjórnkerfið? Ráðuneytið? Hvaða kerfi hefur brugðist í þessu og hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera í því? Voru þetta bara handahófskenndar yfirlýsingar þar sem hæstv. ráðherra sagði það sem hann taldi að fólk gæti hugsanlega viljað heyra eða er hæstv. ráðherrann með einhver raunveruleg áform? Hver eru þau áform? Verður það finnska leiðin í lestrarkennslu eða vestmanneyska leiðin? Hvaða breytingar verða á stefnu um skóla án aðgreiningar? Hvernig á að taka á agavandanum í íslenskum grunnskólum? Hvernig á að bæta lesskilning barna þegar þau útskrifast úr grunnskóla?
Er að vænta ræðu frá hæstv. menntamálaráðherra um að allt sé dásamlegt og verði enn þá dásamlega hjá þessari ríkisstjórn eða fáum við alvörusvör um stefnu og aðgerðir? Hvað ætlar hæstv. ráðherra raunverulega að gera? Var hæstv. ráðherra kannski tekinn á teppið hjá hæstv. forsætisráðherra eftir fyrstu yfirlýsingarnar? Er það ástæðan fyrir því að hæstv. ráðherra dró í land með yfirlýsingar sínar um að menntakerfið væri hriplekt skip? Mun kerfið ráða för eða hæstv. ráðherra? Ef hæstv. ráðherra ætlar að stjórna, hvaða breytingar verða orðnar að ári liðnu í þessum málaflokki? Og hvernig ætlar hæstv. ráðherra að ná þeim breytingum fram?