157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Staða grunnskólanna.

[14:21]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa góðu umræðu. Staðreyndin er sú að námsárangur á Íslandi hefur verið að dragast saman í samanburði við fyrri árganga og önnur lönd. Börnin okkar, og við reyndar líka, eru að verja allt of miklum tíma í skjái og afþreyingu sem veitir skammtímagleði en dregur úr getunni okkar til einbeitingar og djúprar hugsunar. Afleiðingin er sú að börn eru í auknum mæli að missa áhugann á að sinna náminu, á lestri bóka eða á mannlegum samskiptum. Á sama tíma hefur nemendahópurinn orðið fjölbreyttari og verkefni kennara flóknari. Það er hlutverk stjórnvalda, og ég fagna því að það sé boðað hér, að bregðast við þessari stöðu með markvissum aðgerðum. Á næstu vikum verða framkvæmd samræmd stöðupróf á hæfni nemenda í öllum grunnskólum landsins með matsferli sem við lögfestum síðastliðið vor. Niðurstöðurnar munu varpa skýrara ljósi á stöðu nemenda og árlegar mælingar munu styðja við skólaþróun og mat á skólastarfi.

Við höfum jafnframt lagt fram frumvarp sem veitir ráðherra heimild til að lágmarka og takmarka símanotkun grunnskólanemenda, en þar verða heimilin líka að stíga upp. Áskoranir skólakerfisins kalla líka á öflugri stuðning við kennara þannig að þeir geti forgangsraðað tíma sínum til að sinna kennslu til að nemendur nái þeirri hæfni sem við gerum kröfur um í aðalnámskránni. Þær kalla einnig á að við fjölgum öðru fagfólki innan skólanna og styrkjum stoðþjónustu sem grípur nemendur tímanlega þegar þörf er á viðbótarstuðningi. En það sem skiptir mestu máli og mun örugglega hafa mest áhrif er að við stígum upp sem samfélag og að við gerum skýrar kröfur til barnanna okkar og tryggjum þann stuðning sem þau þurfa til að ná árangri. Námsárangur barna er nefnilega ekki einkamál kennarans eða skólans heldur samstarfsverkefni heimilis, skóla, íþrótta og tómstundastarfs, en í öflugu samstarfi þessara aðila liggur lykillinn að árangri í framtíðinni.