Staða grunnskólanna.
Frú forseti. Ég vil líkt og aðrir þakka málshefjanda fyrir að koma þessu máli á dagskrá og ráðherra fyrir að koma hér og ræða um menntamál, sem ég er alveg sammála að sé mikilvægt að við ræðum í þinginu sem oftast og ég fagna því. En um leið og ég segi þetta þá skiptir máli að við festumst ekki í einhverju afmörkuðu sjónarhorni sem tekur á einum þætti í menntamálum heldur séum kannski líka svolítið að horfa á heildarmyndina. Leið barnsins í gegnum leikskólann, grunnskólann og framhaldsskólann getur verið flókið ferli og jafnvel áskorun á vissum sviðum og við þurfum að vera meðvituð um að það passa ekki allir inn í sama mótið. Því er kannski varhugavert að ætla það að hægt sé að heimfæra eina kennsluaðferð yfir á alla grunnskóla landsins og að allir passi inn í það form. Í því ljósi held ég að það sé afar mikilvægt að við séum með fjölbreyttar kennsluaðferðir en um leið að við séum að huga að gæðum í námi og gæðum þegar kemur að kennslu í skólunum okkar, allt frá leikskóla og upp í framhaldsskóla og háskóla, af því að það skiptir máli hvernig við nálgumst viðfangsefnið. Við erum mjög rík af fagfólki víða í menntakerfinu okkar, af einstaklingum sem skara fram úr á margan hátt, og ég held að það sé afar mikilvægt að við styðjum fagfólkið í þessu verkefni í stað þess að tala það niður. En við þurfum líka að hafa í huga ábyrgð foreldra þegar kemur að menntun barna. Við þurfum að huga að því hvert hlutverk okkar sem foreldra er í því m.a. að setjast niður með börnunum okkar og kenna þeim að lesa.
Mig langar að segja, þetta er nú skammur tími, að það er ýmislegt sem þarf að gera. Við þurfum að fjölga kennurum til langs tíma og mig langar að heyra í hæstv. ráðherra hvað hún ætli að gera til að mæta því. Hæstv. ráðherra hefur talað um að setja aukna fjármuni í námsgagnagerð. Ég fagna því mikið en er samt hissa því að fyrir einungis sjö vikum hafnaði hún tillögu okkar í Framsókn um að setja aukið fjármagn í námsgagnagerð. Við þurfum að stórefla menntarannsóknir (Forseti hringir.) og mig langar að spyrja ráðherra hvað hún hyggist gera í því.
Að lokum, af því að ráðherra talar um að við þurfum að byggja á gögnum og þurfum að byggja á fagmennsku, langar mig að spyrja hæstv. ráðherra út í verkefnið Kveikjum neistann. (Forseti hringir.) Það getur verið mjög jákvætt að vissu leyti en til að geta fullyrt að það sé árangur af því þarf óháð mat, sem er ein af sjö forsendum fyrir því að hægt sé að fullyrða slíkt. Hvaða rök hefur hæstv. ráðherra fyrir sér (Forseti hringir.) í því að það sé stórkostlegur árangur af verkefninu Kveikjum neistann?
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir þingmenn á að gæta ræðutímans.)