157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Staða grunnskólanna.

[14:28]
Horfa

Snorri Másson (M):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og hæstv. ráðherra fyrir góða umræðu. Staðan er ekki nógu góð. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen vísaði til þess að aðeins 3% nemenda hér eru með afburðahæfni og 40% nemenda hafa ekki grundvallarlesskilning við 15 ára aldur. Margir spyrja sig hvað veldur og það er ýmislegt nefnt. Við tölum um tæknina, myndlæsi, breytt læsi, við tölum um foreldrana. Síðan er vikið að því auðvitað, svona í framhjáhlaupi stundum, að víða eru tugir tungumála töluð í hverjum bekk, eins og þetta sé jú áskorun í fjölbreyttara samfélagi en við getum komist yfir það. En ég vil halda því fram að við þurfum að taka þennan þátt alvarlega, þ.e. samspil innflytjendastefnunnar og skólamála. Ég tel ekki laust við að við getum hreinlega séð fyrir okkur að töluverður hluti þessa breytta árangurs í skólakerfinu stafi að sjálfsögðu af þessu. Þetta eru gjörbreyttar aðstæður. Það var bara á síðasta ári sem kennari skrifaði pistil þar sem hann fjallar um það að hátt í 90% nemenda sem eru af erlendum uppruna fái takmarkaða íslenskukennslu, skilji lítið og það hafi þær afleiðingar að þeir sem eru frá Íslandi séu þá líka með takmarkaðri orðaforða vegna þess að þá ertu bara að tala öðruvísi þarna. Þessi kennari tók dæmi í 9. bekk um setninguna „Hjartað dælir blóði“, sem enginn í bekknum skildi. Það er svona raunstaðan í skólakerfinu. Það sem ég hefði talið kannski þörf á að blanda inn í þessa umræðu er að það er ekki alveg tækt að stjórnmálamenn, hvort sem þeir eru úr Samfylkingu, Viðreisn eða Flokki fólksins, tali um skólamálin og innflytjendastefnu á þessum nótum: Sko, jú, sannarlega er þetta fjölbreyttara samfélag og auðvitað eru áskoranir. Á einhverjum tímapunkti þurfum við að kannast við að það séu þolmörk í þessari þróun og að það þurfi líka að tala um breytta innflytjendastefnu á sama tíma.