157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Staða grunnskólanna.

[14:33]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir frumkvæðið að þessari umræðu og ég vil líka þakka hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, fyrir að tala hreint út um það, strax frá upphafi, að aðgerða sé þörf. Ég vil hvetja hana til að taka á málunum, ekki bara í orði heldur á borði. Við vitum að skólarnir standa frammi fyrir miklum vandamálum og ég er sérstaklega sammála ráðherranum um það að hún sjái að skóli án aðgreiningar er ekki að virka. Sú stefna hefur valdið gríðarlega miklu álagi á kennarana, eins og við þekkjum, og það eru margar ástæður fyrir því, m.a. gjörbreytt samsetning nemenda á undanförnum árum. Einnig vil ég taka undir það að það er mjög jákvætt að taka upp samræmdu prófin aftur.

Þegar við erum að tala um skólana, skólamenningu og skólastarf þá verðum við að átta okkur á því að skólasamfélagið er ekki bara nemendur og kennarar, það eru líka foreldrarnir. Í samtölum við kennara, sem ég veit að flestir hér inni eiga annað slagið, þá finnur maður það svo glöggt og heyrir svo skýrt að þeir hafa miklar áhyggjur af ákveðinni tengslaröskun meðal nemenda. Börn vantar gæðastundir, spjallið heima og lestur með foreldrum og forráðamönnum. Þetta þurfum við öll sem samfélag að taka höndum saman um. Þetta er grundvöllur að því að börnin fái ánægju af því að lesa, að þau skilji tilganginn, hvað þýðir að þurfa að lesa og afla sér þekkingar og fræðslu þar í gegnum og sér til ánægju og yndisauka. Þarna þurfum við öll að stíga saman inn í málið.

Ég hvet ráðherrann til að búa ekki til einhverja eina ríkisleið í þessari yfirferð sinni og endurskoðun. (Forseti hringir.) Örstutt hér í lokin langar mig að vita hvaða augum hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) lítur sjálfstætt rekna skóla og mikilvægi þeirra í skólaflóru og hvort eitthvað sé hægt að læra af þeirri starfsemi sem þar fer fram, (Forseti hringir.) því þar gilda oft og tíðum önnur lögmál.

(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á ræðutímann.)