157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Staða grunnskólanna.

[14:40]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og hæstv. ráðherra Ingu Sæland fyrir þessa umræðu. En það er plagsiður nú um stundir að tala niður skólastarf og skiptir þá ekki máli hvort rætt er um grunn- eða framhaldsskóla. Orðræðan er með þeim hætti að nemendum í grunnskóla gangi ekki vel í alþjóðlegum prófum, standi erlendum jafnöldrum sínum að baki og að vísbendingar séu um að nemendur geti vart lesið sér til gagns við lok grunnskóla. Að mínu mati er mikilvægt að umræða um grunnskólann sé opinská og heiðarleg en jafnframt uppbyggileg. Við þurfum að geta rætt um það sem betur má fara en jafnframt að taka eftir og lyfta því sem vel er gert. Grunnskólinn er grunnstoð í samfélagi okkar, kannski fyrsta verkefnið sem börn fá þar sem ætlast er til að þau sýni ábyrgð, leggi sig fram og hefji undirbúning undir lífið, velji sér starf eða frekara nám. Það er ekki hægt að ítreka það um of hversu mikilvæg stofnun grunnskólinn er. Sagt er: Lengi býr að fyrstu gerð. Það er mikilvægt fyrir okkur að allt umhverfi skólastarfs stuðli að því að börn verði hamingjusöm og nýtir þjóðfélagsþegnar.

Frú forseti. Það eru fleiri áskoranir sem blasa við starfi grunnskólans. Sé samsetning nemenda borin saman við samsetningu nemenda fyrri ára má sjá töluverða breytingu, hvort tveggja á þörfum barna almennt svo og sérstaklega þeirra barna sem hingað til lands hafa flust síðustu ár. Sú breyting sem orðið hefur á fjölgun þjóðarinnar speglast vitaskuld í nemendahópi grunnskólans. Þeir ráðherrar sem farið hafa fyrir þessum málaflokki undanfarið hafa allir haft mikinn metnað til að gera vel við nemendur og í starfsemi grunnskólans. Markmið allra ráðherra er að tryggja jafnræði milli skóla, stuðla að jákvæðu námsumhverfi og bregðast við þeim áskorunum sem fylgja tækniþróun og breyttum samskiptum barna.

Frú forseti. Í umræðu um skólastarf verður að leggja áherslu á mikilvægi kennara og kennaranáms. Við þurfum að búa kennurum viðeigandi starfsumhverfi og hvatningu svo árangur náist. Við þurfum einnig að vera þolinmóð. Sé það svo að við höfum dregist aftur úr þeim sem við viljum bera okkur saman við þá er mikilvægt að við setjum okkur stefnu og fylgjum henni. Stefnan verður að vera samstarfsverkefni. Það hafa ekki allir sömu skoðun á því hvaða leið á að fara en við búum að góðu skólafólki sem ég treysti til þess að komast að samkomulagi um hvað henti börnunum okkar best. Gleymum því ekki að mennt er máttur og hún eykur samkeppnishæfni þjóða.