Staða grunnskólanna.
Frú forseti. Það er til siðs að þakka fyrir góða umræðu og ég þakka hæstv. ráðherra og þeim sem tóku þátt í umræðunni. En ég velti fyrir mér: Hverju skilaði þessi umræða? Hvaða svör fengum við frá hæstv. ráðherra um hvaða leiðir verði farnar og hvað standi raunverulega til? Hæstv. ráðherra nefndi reyndar að 30% grunnskólabarna, 85% í einhverjum skólum, væru erlend og töluðu ekki tungumál landsins nema kannski að takmörkuðu leyti. Hæstv. ráðherra sagði um þetta: Þetta er ekki vandamál heldur veruleiki. En veruleiki getur verið vandamál. Eða vill ríkisstjórnin bara fást við vandamál sem byggja ekki á veruleikanum? Það gæti skýrt ýmislegt í nálgun þessarar ríkisstjórnar. Hæstv. ráðherra sagði líka í ræðu sinni: Þetta snýst ekki um tölur á blaði heldur velferð barnanna okkar. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen sagði reyndar í sinni ræðu skömmu síðar, réttilega: Að geta ekki horfst í augu við tölfræði, er meðvirkni sem bitnar á börnunum okkar.
Frú forseti. Við verðum að ræða innihaldið og við verðum að bregðast við, ástandið núna kallar á það. Almennt tal um hvað betur mætti fara dugar ekki við þær aðstæður sem við stöndum núna frammi fyrir. Við þurfum að heyra hvað ráðherrann ætlar raunverulega að gera og hvernig hann ætlar að gera það. Ég skal viðurkenna að ég er orðinn óþolinmóður því að svo oft hefur maður heyrt í gegnum tíðina, og áður en ég byrjaði sjálfur í pólitík, almennt tal um hvað betur mætti fara. En það vantar eftirfylgnina. Það vantar upplýsingar um hvernig menn ætla að laga hlutina. Ég óttast, frú forseti, (Forseti hringir.) að að ári liðnu þá verði ósköp lítið búið að breytast í þeim málum sem hæstv. ráðherra nefndi réttilega sem áhyggjuefni þegar hann tók við embætti.