Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég býst ekki við að ég eigi að skilja ráðherrann sem svo að úr því að menn hafi lýst efasemdum, einhverjir úr Miðflokknum, í tengslum við heimildir lögreglu í sambandi við efnahagsbrot þá sé það krafa ráðherrans að sama afstaða gildi um þessi brot sem eru auðvitað hryðjuverk og eru sannarlega annars eðlis. Ég býst ekki við að það sé í raun og veru skoðun hæstv. ráðherra. En nei, sannarlega telur Miðflokkurinn þarft að í hvert skipti sem Alþingi veitir lögreglu víðtækar heimildir til öflunar upplýsinga eða hvers konar rannsókna án þess að borgarar fái að vita af því að yfirvöld og Alþingi gæti mjög vel að persónuverndarsjónarmiðum. Það er algjört grundvallaratriði í lýðræðisríki, að mínu mati, að menn séu ekki of berskjaldaðir fyrir slíkri viðleitni.
Að því sögðu þá tel ég engu að síður mjög mikilvægt, rétt eins og ég er nú líklega sammála hæstv. dómsmálaráðherra um, að lögreglan og viðeigandi löggæsluyfirvöld, hvort sem þau eru tengd Schengen eða lögreglunni hér á Íslandi, hafi nægilega ríkar heimildir til að afla upplýsinga og vinna sína vinnu án þess að rekast um of á þessi persónuverndarsjónarmið. Við erum hér að tala um, eins og hæstv. dómsmálaráðherra lýsti, þetta jafnvægi. En úr því að við erum hér að ræða skipulagða brotastarfsemi þá var hæstv. dómsmálaráðherra einmitt að kynna sína vinnu á því sviði í gær. Þetta er svona fyrirbæri og þróun sem íslensk yfirvöld hafa lengi haft töluverðar áhyggjur af og þessu virðist hafa verið leyft, ef svo má lýsa því, að komast í töluvert uppnám eða alla vega færast mjög til verri vegar á stuttum tíma.
Hvert er mat hæstv. dómsmálaráðherra á stöðu skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi í dag? Er ástæða fyrir almenning og yfirvöld til að hafa verulegar áhyggjur? Er þetta eitthvað sem hæstv. dómsmálaráðherra telur að hægt sé að leysa með svona aðgerðalista? Þarf að fara í róttækari aðgerðir? Hvernig metur hæstv. dómsmálaráðherra það og hvernig myndi hann upplýsa almenning um þetta?