157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

hagstjórn ríkisstjórnarinnar.

[10:37]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið sem er enn eina ferðina ekkert svar. Hér mætir hæstv. forsætisráðherra í pontu og heldur áfram að klifa á því sama: Það er allt öðrum að kenna. Þetta er allt síðustu ríkisstjórn að kenna því henni var algjörlega ómögulegt að ná niður verðbólgu. Þetta er þvæla og það er staðreynd og það veit hæstv. forsætisráðherra vegna þess að vaxtalækkunarferlið var hafið í tíð fyrri ríkisstjórnar. Ég ætla að fá að vitna hér orðrétt í grein eftir hæstv. forsætisráðherra frá 15. nóvember 2024: „Samfylkingin er eini flokkurinn með plan um að negla niður vextina og verðbólgu.“ Og áfram hélt Kristrún Frostadóttir, hæstv. forsætisráðherra: „Við ætlum að tryggja að ríkissjóður valdi ekki verðbólgu.“ — Við ætlum að tryggja að ríkissjóður valdi ekki verðbólgu. Hvað er ríkisstjórnin búin (Forseti hringir.) að gera einmitt annað en að valda verðbólgu? Ég vil fá að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í það frumvarp sem hér var til meðferðar þings í fyrradag um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu sem er verðbólguhvetjandi. (Forseti hringir.) Ætlar hæstv. forsætisráðherra virkilega að halda áfram þessari óábyrgu hagstjórn sem þjóðinni, heimilunum og fyrirtækjunum í landinu er boðið upp á?

(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn að virða reglur um tíma.)