hagstjórn ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Hér er talað um að klifa á því sama. Það er alveg rétt. Við ætlum að halda kúrs. Ég gefst ekki upp á því hér í pontu að ítreka það að við ætlum að halda kúrs, við gefumst ekki upp þegar kemur að því að loka fjárlagagatinu. Þegar við sögðumst ætla að vera með plan þá þýðir það að fylgja plani. Það þýðir að gefast ekki upp þegar kemur ein stök mæling sem er óþægileg vegna þess að við erum að ráðast í aðgerðir til að loka gatinu. Við vitum það alveg, þetta er vitað mál og það vita það allir sem þekkja til verðbólgutalna að þetta hefur ekkert með undirliggjandi verðþrýsting að gera. Við höfum engu að síður viðurkennt þessi áhrif en það breytir því ekki að við þurfum að halda plani. Við höfum, hæstv. forseti, séð vexti fara lækkandi á síðastliðnu ári. Við þurfum að skapa áfram forsendur fyrir því, ekki hlaupa upp til handa og fóta af því að verkefnið reynist okkur erfitt. Auðvitað er þetta erfitt, annars hefði fyrri ríkisstjórn gert þetta.
Hvað varðar seinasta hluta þessarar fyrirspurnar þá hef ég ekki tíma til að fara yfir það en ég vil bara ítreka (Forseti hringir.) að okkar áform um að draga úr kjaragliðnun milli fátækasta fólksins í landinu og annarra á vinnumarkaði eru fullfjármögnuð í fjármálaáætlun ríkisstjórnar. (Forseti hringir.) Það kallast pólitísk forgangsröðun og það er ekki lögmál að þessi hópur lækki hægar eða minna en aðrir í landinu. Það er pólitík.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir ráðherra og þingmenn á tímamörkin.)