aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Frú forseti. Hæstv. forsætisráðherra segir enn eins og fyrir ári síðan: Við ætlum, við ætlum, við ætlum. En svo breytist ekki neitt. Aðgerðirnar sem ríkisstjórnin ræðst í hafa jafnvel öfug áhrif við það sem hún boðaði en samt: Við ætlum að halda okkur við planið. Hvert er þetta plan? Við fáum aldrei að vita það, ef það er yfirhöfuð til. Ég held að það sé að koma á daginn að plan þessarar ríkisstjórnar sé bara að búa í eigin veruleika og sama hvað gerist, sama hvað kemur á daginn, að halda sig við sinn ímyndaða veruleika, að það sé planið og þannig eigi að komast í gegnum þetta. Það eru öll merki um það.
Ég ætla að fylgja eftir fyrirspurn hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur um afstöðu hæstv. forsætisráðherra til áforma um breytingar á almannatryggingakerfinu, mál sem er hér til umræðu. Það er mál sem hefur náð að sameina verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur í andstöðu við málið og fjármálaráðuneytið. Engu að síður virðist ríkisstjórnin ætla að keyra það áfram, mál sem gengur út á að dregið verði úr verðmætasköpun, ríkið fjárfesti í því (Forseti hringir.) að draga úr verðmætasköpun. Verðbólga mun hækka og allt verður þetta gert fyrir lánsfé. Styður hæstv. forsætisráðherra þetta mál?