staða og horfur í efnahagsmálum.
Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að því oftar sem hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra útskýra stöðuna í efnahagsmálum og hækkanir í verðbólgu — mér finnst það orðið óþægilegt. Ég tek bara undir með forsætisráðherra. Það er óþægilegt að horfa upp á afneitunina sem er á stöðunni eins og hún er. Í umræðuþáttum síðustu daga hefur hæstv. forsætisráðherra sagt að hún og ríkisstjórnin séu stolt af afrekum ríkisstjórnarinnar. Planið sé að virka.
Verðbólgan er í 5,2%, stefnir í að verða 5% næstu þrjá mánuði. Atvinnuleysi er komið yfir 4% og stefnir því miður í að það hækki og gæti hugsanlega nálgast 5% á næstu mánuðum. Hagvöxtur er minni. Hann hækkaði reyndar örlítið, úr 1,8% í 2%, hjá Seðlabankanum en er samt 1% að meðaltali undir hjá öllum greiningaraðilum. Fjárlögin gerðu ráð fyrir 2,4% en þetta eru 2% sem mun þýða einhverja tugi milljarða minni tekjur á yfirstandandi ári. Samt segir hæstv. forsætisráðherra að þetta sé allt einskiptis. Það er ekki það sem Seðlabankinn útskýrði.
Svo á að fara í alls konar breytingar eftir 11 mánuði. Það á bara ekki að hreyfa við neinu öðru. Fólk á bara að lifa með því að þetta sé svolítið óþægilegt. Það er óþægilegt að horfa upp á afneitunina. Það á ekkert að gera í 11 mánuði, ekki neitt. En það er talað um og hæstv. forsætisráðherra sagði að hér væri fólk sem væri búið að gíra sig upp. Ég veit ekki hvort allur almenningur áttar sig á því en hæstv. forsætisráðherra er að segja að ungt fólk og fólk í landinu hafi keypt of stórt húsnæði að hennar mati, of dýrt húsnæði að hennar mati, og það eigi að borga meira fyrir það og núna eigi að fara í einhverjar aðgerðir til þess.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hver er þróun skuldsetningar íslenskra heimila síðastliðin fimm ár, síðastliðin tíu ár, síðastliðin 15 ár, síðastliðin 20 ár, til að taka inn tímabilið þar sem Samfylkingin var síðast við stjórn? (Forseti hringir.) Hvernig tengist sú þróun yfirlýsingum forsætisráðherra um gírun í húsnæðiskaupum sem eigi síðan að taka á og ákveða hvernig fólk eigi að borga af lánum sínum á næstunni?
(Forseti (ÞSv): Forseti beinir enn og aftur þeim tilmælum til hv. þingmanna og hæstv. ráðherra að virða ræðutímareglur í þingsköpum.)