samræmt námsmat í grunnskólum.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra falleg orð í minn garð og í umræðunni sem var hér á þriðjudag um menntamál hrósaði ég hæstv. ráðherra fyrir að tala hreint út og opinskátt um stöðuna og vil bara gera það hér aftur. Ég vil líka taka það fram að ég væri til í að hafa alla vega eina mínútu í viðbót í þessum ræðustól þar sem ég er búinn að tala um annað en ég ætlaði að spyrja um. En ég er meira en tilbúinn að aðstoða ef þörf er á.
Hér kemur það sem ég vil tala um: Finnland er oft nefnt í þessari umræðu sem hið fyrirheitna land. Finnland hefur hrapað um eitt og hálft ár frá síðustu könnun á lesskilningi og um eitt ár í stærðfræði. Finnar eru sú þjóð sem hefur hrapað nánast jafn hratt og Íslendingar þannig að Finnland er ekki endilega fyrirheitna landið. Þeir hafa tekið upp ákveðna vinstri sinnaða framsækna skólapólitík sem hefur smitað stóran hluta Evrópu í menntamálum og valdið ákveðnu hruni í mörgum Evrópuríkjum. Til að þingheimur skilji hvað ég er að ræða um — frú forseti, afsakið, ég er kominn aðeins yfir tímann. Í finnska skólakerfinu eru námsgreinar ekki kenndar lengur. Það er öllu blandað saman, það ægir öllu saman þar (Forseti hringir.) og þekking, lestur og reikningur er ekki lengur í forgrunni þannig að ég myndi hvetja hæstv. ráðherra til að ígrunda þessi mál vel. (Forseti hringir.) Og ég spyr ráðherra: Hvað er það í finnsku skólakerfi sem hæstv. ráðherra vill taka upp?