störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra skýrsluna og framsöguna. Ég veit að ég og hæstv. ráðherra erum sammála um mjög margt þegar kemur að norrænu samstarfi, sem betur fer. Það hefur einhvern veginn verið svoleiðis að við höfum náð að vera sameinuð á útivelli, þingmenn í þessum þingsal, óháð því hvernig við erum svo heima, af því að við erum oft sammála í stóru myndinni. En það er eitt sem ég hnaut mjög um í ræðu hæstv. ráðherra. Ég þykist nú hafa kynnst hæstv. ráðherra hér frá því að ég tók sæti á þingi sem miklum þingræðissinna. Hæstv. ráðherra kom inn á þann mikla árangur sem við náðum þegar við héldum þing Norðurlandaráðs hér á þarsíðasta ári þar sem var einróma samþykkt af öllu Norðurlandaráðsþingi að endurskoða ætti Helsingforssáttmálann. Þessum tilmælum var beint til ríkisstjórnanna. Nú situr það á þeirra borði, eins og hæstv. ráðherra fór yfir. Í ræðu hæstv. ráðherra ítrekaði hann alltaf hugsanlega endurskoðun Helsingforssáttmálans.
Virðulegur forseti. Í mínum huga er það ekkert hugsanlega, Norðurlandaráðsþing hefur talað einróma. Grænlendingar hafa sýnt sína móðgun og sín viðbrögð og krafist þess að úr verði bætt. Færeyingar hafa gert það í áratugi. Ég spyr hæstv. ráðherra: Þrátt fyrir að við þurfum oft að fara varlega í alls konar diplómasíu, er ekki kominn tími til þess að Íslendingar, og þá beini ég því sérstaklega til hæstv. samstarfsráðherra okkar, tali bara skýrt. Það er ekkert hugsanlegt í þessum efnum. Nú þarf bara að ganga í verkið og breyta Helsingforssáttmálanum.