157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025.

417. mál
[11:31]
Horfa

ráðherra norrænna samstarfsmála (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, eins og hv. þingmaður sagði þá höfum við borið gæfu til þess að verða sameinuð á útivelli, og reyndar líka stundum á heimavelli, og það er ekki að breytast. Ég ætla ekki að gera ágreining um það að hv. þingmaður hafi hnotið um þetta orðalag og hugsanlega hefði ég mátt sleppa þessu. Það eina sem ég hef mér til málsvarnar þar er að ég er bara að tala sem fulltrúi Íslands í veruleika þar sem fjögur önnur lönd þurfa að vera sammála okkur. En ég hef alveg verið skýr með það, bæði hér inni á fundum sem ég hef átt með ráðherranefndinni og einnig bara fyrir viku síðan með samstarfsráðherrum Færeyja og Danmerkur, að Ísland talar mjög skýrt fyrir því að þetta verði gert. Þannig að ég undirstrika það: Ég hef alveg verið skýr, og kannski fullskýr á köflum, á þeim fundum.

Nú get ég bara sýnt aðeins á spilin: Efni þessa fundar með þessum tveimur ráðherrum frá Færeyjum og Danmörku snerust einmitt um það hver næstu skref eigi að vera. Við tókum það bara mjög skýrt fram að við styddum áform Dana og Færeyinga um að gera þetta hratt, án þess að hika, þannig að þetta verði að veruleika eins fljótt og mögulegt er. Þannig að já, Ísland sýnir kurteisi út á við, við getum verið diplómatísk en við getum alveg verið skýr með hvað við viljum. Það er vilji Íslands og það er vilji íslenskra þingmanna og ráðherra. Við styðjum við þetta ferli og að þetta klárist.