störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025.
Virðulegur forseti. Já, þetta er heilmikil vinna en ég myndi ekki kalla það vesen. Annað eins leggja nú þessar samnorrænu nefndir á sig að sýsla með. Það er rétt að nefna það í upphafi að þó að þetta tiltekna mál, er varðar Færeyjar, Grænland og Álandseyjar, og er kannski það allra mikilvægasta, sé úrlausnarefni þá er einnig verið að tala um að breyta fjölmörgum þáttum og bæta við og styrkja vegna þess að heimsmyndin okkar hefur breyst. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að einstakar þjóðir hafa haft mismunandi sýn á þetta og síðan hefur greiðst úr því, sumpart af sjálfu sér. Ég held að það hafi verið afskaplega gott að Færeyingar unnu sitt mál vegna Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og ég held að það hafi bara skýrt ýmislegt. Ég held að ný heimsmynd, eins og hv. þingmaður kemur inn á, hafi líka einhvern veginn undirstrikað fyrir öllum hversu mikilvægt er að við klárum þetta verkefni.
Heilt yfir þá finn ég ekki mikla tregðu. Það eru einstakir aðilar sem vilja fara sér varlegar en aðrir og það er þá okkar hinna, sem teljum að þetta sé beinn vegur, að tala fyrir því. Skýrsla finnska prófessorsins er alveg skýr með að það eru engin svo stór ljón í veginum að það hindri að halda áfram. Þannig að hér er bara um að ræða vandamálið og að klára það. Þannig að ég er bara býsna bjartsýnn á að það gerist heilmikið bara á þessu ári og það verða alveg örugglega tíðindi af því bara í næsta mánuði.