norðurskautsmál 2025.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sindra Kristjánssyni kærlega fyrir fyrirspurnina og þakka kærlega fyrir hans orð til mín. Það er svo sannarlega rétt og ég hef nýtt mér þessa reynslu og sóttist eiginlega sérstaklega eftir því að fá að leiða þessa nefnd, sem ég er afskaplega þakklátur fyrir, vegna fyrri starfa minna og þekkingar á svæðinu, þó að vissulega hafi komið smá gat í þá vinnu um nokkurra ára skeið.
Hv. þingmaður spyr um einhvers konar stefnubreytingu sem hafi átt sér stað í nefndinni. Nú hef ég náttúrlega ekki setið lengi í nefndinni og aðeins setið einn formlegan fund en átt nokkra svona óformlega fundi líka og ég merki ekki sérstakar breytingar á stefnu þingmannanefndarinnar. Vissulega litar það vinnu nefndarinnar að það vanti Rússana inn í starfið en við erum auðvitað þakklát fyrir það að á vegum Norðurskautsráðsins sé enn þá starfandi allt vísindastarf og rannsóknarstarf með þeirra aðkomu, þannig að það er verið að reyna, að sjálfsögðu, að halda þessu gangandi fyrir svæðið, sem er gríðarlega dýrmætt. En það er alveg rétt sem hv. þingmaður nefnir varðandi varnar- og öryggismál, þau hafa auðvitað tekið mjög mikið pláss. En það er líka áhugavert, því við erum svo heppin í nefndinni að varaformaður nefndarinnar er öldungardeildarþingmaður frá Alaska, Bandaríkjunum, Lisa Murkowski, og hún hefur tjáð sig opinberlega um afstöðu sína til mála og heyrir maður þá að það eru skiptar skoðanir innan Bandaríkjanna um afstöðuna gagnvart Grænlandi. En ég vitna svo að lokum, ég kem kannski nánar inn á það í seinna andsvari mínu, í okkar skýrslu varðandi stefnu í varnar- og öryggismálum þar sem er fjallað m.a. um norðurslóðamál. Þetta kemur líka fram í skýrslu þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu Íslands þar sem verið er að leggja meiri áherslu á norðurslóðir og ég fagna því.