157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norðurskautsmál 2025.

409. mál
[13:44]
Horfa

Frsm. ÍNSM (Eiríkur Björn Björgvinsson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir seinna andsvarið. Okkar stefna í málefnum norðurslóða þegar kemur að öryggismálum er mjög skýr að mínu mati í þessari skýrslu um varnar- og öryggismál. Hún er mjög mikilvæg líka fyrir okkur sem veganesti í umræðunni þegar við eigum samtöl við kollega okkar í þingmannanefndinni. Auðvitað litar breytt afstaða Bandaríkjanna, sem virðast nú skipta um skoðun liggur við á hverjum degi, svolítið umræðuna en ég ítreka að það eru allir sammála innan nefndarinnar, og ekki síður fulltrúi Bandaríkjanna, varðandi þann stuðning og þá afstöðu sem við höfum til Grænlands, að svæðið sé hernaðarlaust svæði, þ.e. að þar sé minni spenna. Það hljómar algerlega í samræmi við þá stefnu sem við höfum. Við vitum auðvitað og gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að efla okkur á sviði öryggismála, þá er ég að tala um t.d. björgun á hafi og björgun á landi og það snertir auðvitað ekki síst okkur Íslendinga. Þá kemur aftur að þeirri reynslu sem maður hefur haft þegar maður áttar sig á því hve mikilvægt hlutverk t.d. heilbrigðisstarfsemi á Norðurlandi skiptir máli fyrir þá þjónustu sem við þurfum að veita hér fyrir norðan land. Þannig að ég vil meina að okkar innlegg og okkar afstaða skipti máli og það er svo sannarlega hlustað á hana. Ég vona að þetta hafi svarað spurningu hv. þingmanns.