norðurskautsmál 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni kærlega fyrir hans framsögu í málinu og þá skýrslu sem hann flutti hér áðan. Þetta er mikilvægt samstarf sem við erum í. Það er einkar mikilvægt núna. Það er að mínu mati líka einkar mikilvægt að vera í alþjóðlegu samstarfi þar sem Grænlendingar eru og við vitum auðvitað öll okkar hug hér á þingi til Grænlands og sjálfsákvörðunarréttar þeirra. Mig langar samt líka að nefna að fulltrúar grænlenskra stjórnvalda, sem við segjum að við virðum, hafa auðvitað talað og Kim Kielsen, formaður dönsku landstjórnarinnar, hefur sagt að Grænland sé ekki til sölu. En ef til þess kæmi að velja þyrfti á milli Danmerkur og Bandaríkjanna þá sagði hann: Þá veljum við Danmörku, við veljum NATO, við veljum konungsríkið Danmörku og við veljum ESB. Það sagði formaður dönsku landsstjórnarinnar og ég held að við eigum að bera virðingu fyrir því. Það vita auðvitað allir minn hug, að sá sem hér stendur er mikill Evrópusinni og myndi auðvitað gleðjast mjög ef Grænlendingar myndu ákveða að taka ákvörðun um að vinna þéttar með Evrópusambandinu í hvaða formi sem það yrði. Ákvörðun um þetta er engu að síður bara þeirra og einungis þeirra. En ef sú ákvörðun verður tekin að efla það samstarf þá er það auðvitað eitthvað sem við þurfum líka að bera virðingu fyrir og verja þennan rétt til að taka slíkar ákvarðanir.
En út af því að forseti beitir hér þingsköpum af staðfestu og röggsemi og meinar mér að fara í bein andsvör við framsögumann skýrslunnar, sem er samflokksmaður minn, þá langar mig samt aðeins að velta fyrir mér, af því að ég er mjög forvitinn, að fá betur að vita varðandi afstöðu Bandaríkjanna sérstaklega. Ég hef verið þátttakandi á ÖSE-þinginu þar sem Bandaríkjamenn hafa því miður ekki getað mætt mikið að undanförnu, á síðustu tvo fundi. Þeir hafa verið fastir í störfum heima fyrir þannig að maður hefur lítið eða ekki getað talað við þingmenn frá Bandaríkjaþingi með jafn opinskáum eða persónulegum hætti og maður hefði viljað, eða bara ekki yfirleitt, út af því að þeir hafa ekki komist, annars vegar vegna vinnu við fjárlagastoppið og svo hins vegar vegna vinnu við „the big, beautiful bill“, sem ég held að væri bara rétt að þýða sem bandorm, en fyrrnefnda heitið er vissulega hnyttnara. Ég hef ekki getað rætt jafn mikið og ég hefði viljað við bandaríska þingmenn í þessum efnum.
Ef hv. þm. Eiríkur Björn Björgvinsson sæi sig knúinn til að koma í aðra ræðu, ef það myndu koma yfir hann einhvers konar hughrif til að vilja svara einhverjum spurningum sem koma fram í umræðunni, þá þætti mér vænt um ef hann gæti kannski varpað ljósi á sína reynslu af samskiptum við bandaríska þingmenn sem hafa setið þessar ráðstefnur: Eru þeir allir á einu máli? Eru þeir sammála Bandaríkjaforseta þegar kemur að Grænlandi? Eru sumir sammála og aðrir ósammála? Eru skoðanir skiptar? Eru einhverjir af þeim sem þarna mæta sem taka undir þær áherslur sem Bandaríkjaforseti hefur sett fram til að komast yfir Grænland, annaðhvort með efnahagslegum þvingunum eða með hernaðarlegum hætti? Ef framsögumaður skýrslunnar sæi sér fært að koma hingað í lokaræðu og svara nokkrum af þeim vangaveltum sem komu upp í umræðunni þá þætti mér ekki leiðinlegt ef þetta væri eitt af því sem hann myndi nefna.
Forseti. Ég hef að öðru leyti lokið máli mínu.