norðurskautsmál 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega fyrir það, ég hefði alveg getað komið upp í ræðu aðeins í lokin en takk kærlega fyrir tækifærið.
Varðandi spurningu hv. þm. Pawels Bartoszeks um aðkomu Bandaríkjamanna í nefndinni þá hafa okkar samskipti aðallega verið við öldungardeildarþingmanninn Lisu Murkowski. Hún hefur verið mjög afgerandi og mjög skýr um það að Bandaríkjamenn ætli sér hvorki að innlima Grænland né kaupa Grænland. Það hefur komið skýrt fram í hennar máli og hún hefur verið mjög sýnileg í fjölmiðlum með það eins og t.d. þegar hún mætti á fund í Danmörku þar sem hún lýsti yfir sínum skoðunum á þessu þannig að hún er ekki á sömu skoðun, alla vega miðað við þær yfirlýsingar sem Bandaríkjaforseti hefur haft. Hún hefur líka upplýst okkur um að samkvæmt einhverri könnun — erfitt þegar maður er að vitna í kannanir sem maður hefur ekki séð sjálfur en alla vega þá vitna ég í hana — séu 75% Bandaríkjamanna einfaldlega andsnúin stefnu Bandaríkjaforseta varðandi innlimun Grænlands. Þannig lýsti hún því alla vega á fundi með okkur. Hver afstaða annarra þingmanna er veit ég ekki en eðlilega eru skiptar skoðanir um þetta eins og annað í öðrum þjóðþingum en það er alla vega skýrt hvað Lisa Murkowski hefur sagt hvað þetta varðar. Önnur samskipti við þingmenn Bandaríkjanna nú nýlega hef ég ekki haft, en áður fyrr áttum við bara í mjög góðum samskiptum við þingmenn Bandaríkjanna varðandi málefni norðurslóða, sérstaklega þegar kom að öryggismálum og þá sérstaklega varðandi björgun á hafi og á landi eins og ég kom aðeins inn á í fyrri andsvörum mínum. En takk fyrir tækifærið til að fá að bregðast aðeins við.