157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norðurskautsmál 2025.

409. mál
[13:52]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni fyrir góða yfirferð um norðurskautsmál og starfið síðasta ár. Ég hef setið sem varamaður í þessari Íslandsdeild og þakka hv. þingmanni einnig fyrir gott samstarf sem og hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.

Nú er gríðarlega mikið rætt um öryggismál á norðurslóðum og hætt við því að athyglin beinist einungis að þeim mikilvægu málum á sama tíma og loftslagsmál þyrftu að vera í sams konar sviðsljósi, sérstaklega fyrir þjóðir á norðurheimskautssvæðinu þar sem hlýnun af mannavöldum er fjórum sinnum hraðari en annars staðar á jörðinni. Vísindi og vísindamenn sem helga sig rannsóknum vegna loftslagsbreytinga eiga verulega undir högg að sækja núna þegar fjármagn hefur verið sogað úr alþjóðasamtökum og -kerfum sem eru nauðsynleg fyrir framgang þekkingaröflunar. Það eru líka önnur öfl sem sækja hart að vísindum og kerfum sem við styðjumst við til að takast á við þessa gríðarlegu ógn sem steðjar að okkur, öfl sem vilja standa vörð um óbreytt ástand og virðast ekki átta sig á því að það mun verða til þess að jörðin verði óbyggileg fyrir framtíðarkynslóðir.

Norræna ráðherranefndin sendi nýlega frá sér skýrslu um loftslagsvendipunkt sem snýr að hruni Atlantshafshringrásarinnar, AMOC, sem er hluti af mikilvægu hafstraumakerfi og hefur gríðarleg áhrif á loftslag og veður á norðurslóðum og reyndar víðar um heim. Norrænu löndin hafa lengi unnið að loftslagsaðlögun og kolefnisbindingu en hingað til hafa áætlanir og aðgerðir ekki tekið nægilegt tillit til hugsanlegs falls eða umbreytingar á AMOC. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman vísindalega þekkingu á mögulegum áhrifum hruns AMOC, leggja til leiðir til að draga úr þessum áhrifum og aðlagast þeim og veita yfirsýn yfir þau þekkingargöt sem enn eru til staðar. Skýrslan er ætluð breiðum hópi lesenda, m.a. stefnumótendum í ríkjum við Norður- Atlantshaf, þar á meðal á Norðurlöndum, í Bretlandi og Kanada, sem og opinberum starfsmönnum og almenningi sem hefur áhuga á efninu, auk þeirra sem leita að hagnýtum tillögum til aðgerða. Þessi skýrsla er í raun mjög aðgengileg, sjónræn og einföld yfirlestrar svo ég hvet áhugasama eindregið til að kynna sér hana.

Ástæða þessarar vinnu eru ný gögn og yfirlýsingar vísindamanna sem benda á að hættan á verulegum breytingum á AMOC-hafstraumakerfinu er meiri en áður var talið. Ég vil nýta tilefni til að hrósa hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhanni Páli Jóhannssyni, fyrir sína framgöngu þegar kemur að þessari ógn sem steðjar að en að hans frumkvæði vísaði ríkisstjórnin málinu til þjóðaröryggisráðs til umfjöllunar.

Virðulegi forseti. Ég vil nýta tækifærið hér þegar málefni norðurslóða eru til umfjöllunar og segja frá helstu áherslupunktum nýútkominnar skýrslu. Í henni er lögð áhersla á að Norðurlönd og aðrir aðilar vinni markvisst að eftirfarandi fjórum atriðum:

Í fyrsta lagi þurfa lönd að beita sér af öllu afli til að draga úr losun og forðast frekari hlýnun því sem stendur ríkir mikil óvissa um hvort AMOC muni fara yfir ákveðin viðmiðunarmörk, svokallað „tipping point“, með leyfi forseta, sem og við hvaða stig hnattrænnar hlýnunar eða í hvaða tímaramma það gæti gerst. Þar til þessi mörk eru þekkt með meiri vissu verður að gæta varúðar því við hverja 0,1°C hækkun á hitastigi og við lengingu á því tímabili þar sem farið er yfir 1,5°C markið eykst hættan á hruni AMOC. Því er afar mikilvægt að knýja fram aðgerðir sem leiða til kolefnishlutleysis og nettó neikvæðrar losunar. Jafnframt ætti að halda áfram fyrirhuguðum aðlögunaraðgerðum.

Í öðru lagi þarf að fjárfesta í snemmviðvörunarkerfi með því að tryggja langtímafjármögnun til að virkja og viðhalda nauðsynlegum vöktunarkerfum til að byggja upp snemmviðvörunarkerfi fyrir AMOC, kerfi sem tengir saman athuganir á jörðinni og hermilíkön. Þetta viðvörunarkerfi þarf að vera innbyggt í stefnumótunarferli svo mögulegt sé að bregðast hratt við og umbreyta þekkingu í aðgerðir. Ný hafréttarlöggjöf ESB, EU Ocean Act, býður upp á tækifæri til að samræma þetta starf milli landa.

Í þriðja lagi þurfa löndin að undirbúa sig fyrir ólíkar framtíðarsviðsmyndir. Það er talsverð óvissa varðandi þróun AMOC-hafstraumakerfisins, en hrun þess gæti haft í för með sér afar alvarleg áhrif á norðurslóðir, áhrif sem eru ólík og að hluta til andstæð þeim áhrifum sem almennt er búist við af hnattrænum loftslagsbreytingum, sérstaklega hlýnun lofthjúpsins. Því er nauðsynlegt að þróa og innleiða sveigjanlegar aðlögunarstefnur að loftslagsbreytingum sem taka mið af því hversu berskjölduð svæðin eru gagnvart veikingu á AMOC sem virkar þvert á ólíkar framtíðarsviðsmyndir bæði með og án þess að AMOC fari yfir viðmiðunarmörk.

Í fjórða lagi þarf að bregðast strax við. Það er brýnt að mögulegt hrun Atlantshafshringrásarinnar, AMOC, sé meðhöndlað sem raunveruleg og alvarleg áhætta sem lönd þurfa að undirbúa sig fyrir með heildstæðri umgjörð áhættustjórnunar. Til að það verði árangursríkt þarf að horfa til ólíkra þátta sem snúa m.a. að vísindalegu mati, mótvægisaðgerðum, aðlögun, væntanlegu tjóni, fjármögnun og uppbyggingu og getu til að takast á við þessa þætti.

Öll þessi atriði eru í samræmi við málflutning hæstv. ráðherra Jóhanns Páls Jóhannssonar og tel ég að við þingmenn sem tökum þátt í alþjóðastarfi ættum að taka okkur stöðu við hlið ráðherrans í að tala máli norðurslóða með skýrri röddu þegar kemur að þessari ógn og vil ég í þeim efnum hvetja hv. þm. Eirík Björn Björgvinsson til dáða. Þessi mál skipta ekki minna máli en öryggismálin sem eru fyrirferðarmikil í umræðunni þessa dagana, því loftslagsmál eru líka öryggismál.