Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2025.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér skýrslu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES fyrir árið 2025. Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, og Evrópska efnahagssvæðið, EES, gegna veigamiklu hlutverki sem grunnstoðir íslenskrar utanríkisverslunar. Með aðildinni að EES njóta Íslendingar að langmestu leyti sömu viðskiptakjara og 30 önnur Evrópuríki með rúmlega 460 milljóna manna markað. Auk þess að koma að rekstri EES-samningsins hefur EFTA byggt upp öflugt net fríverslunarsamninga við ríki utan ESB, svonefnd þriðju ríki. Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES myndar sendinefnd Alþingis, bæði í þingmannanefnd EFTA og þingmannanefnd EES. Þá myndar Íslandsdeildin ásamt fjórum þingmönnum úr utanríkismálanefnd sendinefnd Alþingis í sameiginlegri þingmannanefnd Íslands og ESB.
Árið 2025 áttu sæti í Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES eftirfarandi aðalmenn: Grímur Grímsson formaður, Diljá Mist Einarsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Kristján Þórður Snæbjarnarson. Ingibjörg gegndi hlutverki varaformanns til 22. maí en frá þeim tíma hefur sú sem hér stendur gegnt þessu hlutverki. Ritarar Íslandsdeildar voru Eggert Ólafsson, lögfræðingur EES-mála, og Stígur Stefánsson, deildarstjóri alþjóðadeildar, og þakka ég þessu samstarfsfólki mínu kærlega fyrir samstarfið. Ísland gegndi formennsku í bæði þingmannanefnd EFTA og þingmannanefnd EES á árinu 2025 og fulltrúi Íslands stýrði þar öllum fundum nema einum sem formaður hafði ekki tök á að sækja.
Þingmannanefndin sótti alls sex fundi í fyrra. Nefndin átti fund með utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna innan EES um EES-samstarfið og fjallaði sá fundur sérstaklega um ákvörðun Evrópusambandsins um verndartolla á kísilmálm. Þá var fundur með ráðherrum EFTA um stöðu fríverslunarstarfs EFTA. Framkvæmdastjórn þingmannanefndarinnar átti sömuleiðis fundi með þingnefndum, ráðuneytum og stofnunum í Kútsíng og Kúala Lúmpúr um fríverslunarmál og aukið efnahagslegt samstarf í ljósi nýsamþykkts fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Malasíu. Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og ESB var haldinn í Brussel í apríl þar sem fjallað var um samskipti Íslands og ESB, öryggis- og varnarmál, tollahækkanir Bandaríkjanna, þverlægar EES-gerðir og þátttöku Íslands í verkefnum. Þá kom þingmannanefnd EES að venju tvisvar saman til fundar á árinu þar sem m.a. var fjallað um varnar- og öryggismál, norðurslóðamál, samkeppnishæfni innri markaðarins, styrkingu nýsköpunar og fjármálatillögur Evrópusambandsins.
Á árinu var staða alþjóðaviðskipta áberandi umfjöllunarefni á þeim fundum sem Íslandsdeild þingmannanefndanna sótti. Óvissa og ófyrirsjáanleiki hafa verið einkennandi. Má þar m.a. nefna breytta viðskiptastefnu núverandi Bandaríkjastjórnar en Ísland varð eins og aðrar þjóðir fyrir tollaákvörðunum Bandaríkjanna, reyndar 10% lágmarkinu en hin EFTA-ríkin urðu fyrir talsvert hærri tollaákvörðunum. Við vorum síðan því miður hækkuð upp í 15%. Ríki hafa því lagt kapp á að ná tvíhliða samkomulagi við Bandaríkin um gagnkvæma niðurfellingu tolla. Bandaríkin eru þó ekki ein um að grípa til aðgerða undir því yfirskini að vernda innlenda framleiðslu og efnahag. Í nóvember 2025 tók Evrópusambandið ákvörðun um að leggja á tolla vegna kísilmálms. Þessar aðgerðir ná m.a. til innflutnings frá Íslandi og Noregi eins og vel er þekkt. Eftir að þessi ákvörðun lá fyrir átti þingmannanefnd EFTA fund með fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB. Sömuleiðis fundaði þingmannanefnd EES, þar sem þingmenn Evrópuþingsins sitja, auk þingmanna EES EFTA-ríkjanna. Á þessum fundum komu fulltrúar Íslandsdeildarinnar skýrt á framfæri mótmælum við þessa ákvörðun ESB og drógu þar ekkert undan við að lýsa óánægju sinni. Ekki bara væri ákvörðun ESB ólögmæt samkvæmt EES-samningnum heldur sendu þessar aðgerðir ekki nógu góð skilaboð til okkar sem erum svo náin samstarfsríki í ESB.
Samhliða umfjöllun um stöðu alþjóðaviðskipta var fríverslunarsamningagerð EFTA við ríki utan ESB, svonefnd þriðju ríki, ofarlega á dagskrá þingmannanefndar EFTA að venju. Fríverslunarsamningar fela í sér lækkun tolla og aukinn fyrirsjáanleika í alþjóðaviðskiptum, t.d. með ákvæðum um upprunareglur og takmörkunum á beitingu tæknilegra viðskiptahindrana. EFTA hefur verið í fararbroddi á heimsvísu í gerð fríverslunarsamninga hagkerfisins og eru fríverslunarsamstarfsríki næststærsti útflutningsmarkaður EFTA á eftir ESB. Á síðastliðnu ári undirritaði EFTA fjóra nýja fríverslunarsamninga: við Kósovó, Taíland, Malasíu, og Mercosur-ríkin. Gildir samningar eru því nú 35 talsins og taka til 49 ríkja. Auk samninga við ný ríki var fríverslunarsamningur EFTA og Úkraínu uppfærður í fyrra og samningur undirritaður við Singapúr um kafla á sviði stafræna hagkerfisins. Þingmannanefnd EFTA hefur á undanförnum árum stutt dyggilega við gerð fríverslunarsamninga EFTA og beitir sendinefndum og þingmannaheimsóknum til að kynna slíka samninga og afla stuðnings við gerð þeirra. Það var einmitt farið í slíka heimsókn til Malasíu í apríl 2025 eins og ég hef áður komið inn á. Sú ferð var óvenjuleg að því leytinu til að stuttu fyrir ferðina lauk fríverslunarviðræðum EFTA og Malasíu. Því var ekki að endingu farið til að tala fyrir gerð samningsins en ferðin nýttist þó vel til að efla tengslin við Malasíu og sýna pólitískan stuðning við samninginn sem var þá óundirritaður.
Þá voru málefni EES-samningsins, Evrópusambandsins og innri markaðarins til umræðu á fundum þingmannanefnda EFTA og EES, m.a. á fundi sem fram fór á Akureyri í maí síðastliðnum. Ný framkvæmdastjórn ESB undir stjórn Ursulu von der Leyen tók til starfa í desember 2024 og starfar hún að óbreyttu til 2029. Áherslur hennar snúa meðal annars að því að auka samkeppnishæfni innri markaðarins og efnahagslegt öryggi Evrópusambandsins og hafa þessir þættir verið talsvert til umræðu í deildinni. Stefna þessi verður m.a. útfærð nánar með löggjöf sem kann að reynast flókið úrlausnarefni með hliðsjón af EES-samningnum. Þessar gerðir geta þannig að hluta fallið innan gildissviðs EES-samningsins og að hluta utan gildissviðs hans. Stendur því til að reyna að finna lausnir á því hvernig EES EFTA-ríkin taka gerðir upp í EES-samninginn og síðar í landsrétt.
Framkvæmdastjórnin kynnti sömuleiðis tillögur að fjárhagsramma fyrir árin 2028–2034. Þessar tillögur eru nú til umræðu innan stofnana ESB. Þær geta skipt EES EFTA-ríkin máli með tilliti til þátttöku í verkefnum ESB. Auk þessa voru varnar- og öryggismál og stuðningur við Úkraínu í kjölfar allsherjarinnrásar Rússlands reglulega til umræðu eins og undanfarin ár, því miður. Rætt var um aðgerðir ESB til að styrkja varnariðnað sinn sem og öryggismál á norðurslóðum.
Virðulegi forseti. Nánar er gerð grein fyrir því sem fram fór á fundum nefndarinnar í fylgiskjölum skýrslu þeirrar sem hér er mælt fyrir og vísa ég til hennar varðandi frekari upplýsingar um störf nefndarinnar en skýrslan liggur frammi.
Að lokum langar mig að segja að við þekkjum það að utanríkisþjónustan okkar er smá í sniðum og hæstv. utanríkisráðherra okkar hefur marga hatta, er m.a. utanríkis- og viðskiptaráðherra. Það er því mikill heiður og gott að geta tekið þátt í þessum þingmannanefndum til að leggja okkar af mörkum til þessa mikilvæga samstarfs.