Evrópuráðsþingið 2025.
Virðulegi forseti. Ég mun hér stikla á stóru í starfi Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins árið 2025 sem formaður Íslandsdeildar. Evrópuráðið var stofnað 5. maí árið 1949 og varð Ísland aðili að ráðinu tæpu ári síðar, þann 7. mars 1950. Hlutverk Evrópuráðsins er að standa vörð um mannréttindi, lýðræði og réttarríkið og stuðla að efnahagslegum og félagslegum framförum í Evrópu.
Á þingfundum Evrópuráðsþingsins eru skýrslur nefnda ræddar og ályktað á grundvelli þeirra. Þingið getur beint tilmælum og álitum til ráðherranefndarinnar sem fjallar um þau og bregst við eftir atvikum með beinum aðgerðum. Evrópuráðsþingið á þannig oft frumkvæði að gerð fjölþjóðlegra sáttmála sem eru lagalega bindandi fyrir aðildarríkin. Dæmi um það eru Evrópusáttmálinn um aðgerðir gegn mansali, sem tók gildi árið 2008, og sáttmáli Evrópuráðsins um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi, sem einnig er nefndur Istanbúl-samningurinn. Báðir þessir sáttmálar eru grundvallaðir á ályktunum Evrópuráðsþingsins. Einn þekktasti fjölþjóðlegi sáttmáli Evrópuráðsins er þó mannréttindasáttmáli Evrópu. Á honum grundvallast Mannréttindadómstóll Evrópu og eru dómar hans bindandi að þjóðarétti fyrir þau ríki sem eiga aðild að honum. Tveir síðastnefndu sáttmálarnir voru nokkuð í umræðunni á vettvangi þingsins á nýliðnu ári.
Eftirfarandi aðalmenn voru kosnir í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 4. febrúar 2025 eftir að nýtt þing kom saman í kjölfar þingkosninganna í lok nóvember 2024: Ragnar Þór Ingólfsson formaður, Sigríður Á. Andersen varaformaður og sá sem hér stendur var einnig kosinn aðalmaður. Varamenn voru Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Bergþór Ólason og Jónína Björk Óskarsdóttir. Á fundi Íslandsdeildar þann 28. mars var sá sem hér stendur kjörinn formaður Íslandsdeildar en Ragnar Þór sat áfram sem aðalmaður. Þann 29. apríl tilkynnti forseti Alþingis frekari breytingar á Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir tók þá sæti Ragnars Þórs sem aðalmaður og Ragnar Þór sæti Kolbrúnar sem varamaður í Íslandsdeild.
Evrópuráðsþingið kemur saman ársfjórðungslega í Strassborg, eina viku í senn, að jafnaði í janúar, apríl, júní og október. Auk þess koma framkvæmdastjórn og stjórnarnefnd Evrópuráðsþingsins saman til funda á milli þinga og afgreiða ýmis mál. Þá fer einnig fram öflugt starf í nefndum þingsins, en þær eru níu talsins, og eru nefndarfundir einnig skipulagðir utan hefðbundinna þingfundavikna. Þar sem Alþingi kom ekki saman fyrr en í febrúar átti Ísland engan fulltrúa á fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg í janúar.
Á vettvangi Evrópuráðsþingsins árið 2025 var áfram lögð þung áhersla á stuðning við Úkraínu og fjölmargar umræður fóru fram sem tengdust árásarstríði Rússlands og afleiðingum þess. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, ávarpaði Evrópuráðsþingið í tengslum við undirritun tvíhliða samnings Úkraínu og Evrópuráðsins um stofnun sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn friði í Úkraínu. Dómstóllinn hefur það hlutverk að draga til ábyrgðar háttsetta ráðamenn fyrir þeirra misgjörðir og er hann ein af þremur stoðum sem eiga að tryggja að Rússland verði látið bera ábyrgð á því tjóni sem ríkið hefur valdið með innrásinni í Úkraínu. Hinar tvær eru tjónaskráin, sem komið var á fót á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík árið 2023, og alþjóðleg skaðabótanefnd en þingið veitti einnig álit sitt á drögum að samningi um skaðabótanefndina á nýliðnu ári.
Umræða um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs og ástandið í mannúðarmálum á Gaza var einnig áberandi. Lögð var áhersla á mikilvægi víðtæks pólitísks samráðs svo að finna mætti lausn á langvarandi deilum og djúpstæðum átökum á svæðinu. Þingið talaði fyrir tveggja ríkja lausn og hvatti aðildarríki og áheyrnarríki Evrópuráðsins til þess að vinna með Sameinuðu þjóðunum og alþjóðadómstólum að því að tryggja að alþjóðalögum væri fylgt.
Þingstörfin einkenndust einnig af þeim öru breytingum sem hafa átt sér stað á alþjóðavettvangi og endurspeglaðist það einna helst í fjölda beiðna um sérstakar umræður. Lýðræðið var einnig ofarlega á baugi í takt við meginhlutverk Evrópuráðsins og þróun síðustu missera. Framkvæmdastjórn Evrópuráðsþingsins setti á fót sérstaka nefnd sem ætlað er að styðja við framtak Evrópuráðsins um nýjan lýðræðissáttmála Evrópu. Beindust sjónir m.a. að áhrifum dóma Mannréttindadómstóls Evrópu á tjáningarfrelsi, funda- og félagafrelsi og að hlutverki stjórnmálaflokka sem fremstu víglínu gegn afturför lýðræðis. Þá var sjónum einnig beint að erlendum afskiptum og áhrifum þeirra á kosningar, m.a. í Moldóvu.
Mannréttindadómstóll Evrópu var þingmönnum einnig hugleikinn á árinu Var kveikjan að umfjölluninni opið bréf níu forsætisráðherra Evrópu þar sem þeir kölluðu eftir samtali um túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu á mannréttindasáttmála Evrópu á sviði innflytjendamála. Skiptar skoðanir voru í umræðu um málið. Litu sumir þingmenn svo á að í bréfinu fælist árás á sjálfstæði dómstólsins meðan aðrir töldu afar mikilvægt að skapa svigrúm til umræðu um túlkun dómstólsins á mannréttindasáttmála Evrópu.
Umræða um jafnréttismál var jafnframt áberandi og meðal þess sem bar hæst var sérstök umræða um aðgerðir almennings til varnar mannréttindum og lýðræði í Lettlandi. Lettneska þingið samþykkti í lok október að segja sig úr Istanbúl-samningnum sem er samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi en samningurinn á rætur að rekja til umræðu og ályktana á vettvangi Evrópuráðsþingsins. Ákvörðun þjóðþings Lettlands kallaði fram ein stærstu mótmæli í sögu landsins. Forseti Lettlands synjaði lögunum staðfestingar og vísaði þeim aftur til þingsins. Verður málið ekki tekið upp aftur fyrr en að afliðnum þingkosningum sem fara fram síðar á þessu ári.
Verðlaun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur fyrir valdeflingu kvenna voru veitt í annað sinn á árinu en þau eru afrakstur samstarfs íslenskra stjórnvalda og Evrópuráðsþingsins. Komu verðlaunin að þessu sinni í hlut palestínsku samtakanna Konur sólarinnar sem stofnuð voru í þeim tilgangi að skapa tækifæri fyrir palestínskar konur til að komast inn á karllæg svið eins og stjórnmál, viðskipti og tækni. Samtökin hafa einnig leitt saman palestínskar og ísraelskar konur til að stuðla að samræðum, efla gagnkvæman skilning og brjóta niður múra og fordóma þeirra á milli.
Þá má einnig geta þess að Gréta Gunnarsdóttir tók við af Ragnhildi Arnljótsdóttur sem fastafulltrúi Íslands gagnvart Evrópuráðinu í byrjun septembermánaðar og Despina Chatzivassiliou var endurkjörin framkvæmdastjóri Evrópuráðsþingsins til næstu fimm ára en hún var upphaflega kjörin árið 2021, fyrst kvenna.
Íslandsdeild fundaði fimm sinnum á árinu til þess að undirbúa þátttöku á fundum erlendis. Sá sem hér stendur sótti tvo fundi stjórnarnefndar í Valetta og Kísiná og tók sæti í tveimur sérnefndum á vegum þingsins, í tengslaneti þingmanna í málefnum úkraínskra barna og sem fulltrúi menningarmálanefndar í sérnefnd framkvæmdastjórnar um nýjan lýðræðissáttmála. Þá sótti ég einn fund utan þingfundaviku en það var fundur tengslanets þingmanna í málefnum úkraínskra barna sem fór fram í Kænugarði í júní. Þá fór einnig fram í fyrsta skipti sérstakur fundur formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, NB8, í Jurmala í ágúst. NB8-formennirnir á Evrópuráðsþinginu koma alltaf saman í hverri þingfundaviku í Strassborg til þess að fara yfir helstu dagskrármálin hverju sinni en þetta var í fyrsta skipti sem hópurinn hittist á lengri fundi utan þingfundaviku og tók ég þátt í þeim fundi sem fulltrúi Íslandsdeildar. Þá sótti Sigríður Á. Andersen fund laga- og mannréttindanefndar í Lundúnum í desember.
Virðulegur forseti. Ég hef nú stiklað á stóru í starfsemi Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins á árinu 2025 en vísa að öðru leyti til ársskýrslunnar í heild sinni sem aðgengileg er á vef Alþingis. Þá vil ég einnig nota tækifærið og þakka þingmönnum Íslandsdeildar fyrir samstarfið á vettvangi Evrópuráðsþingsins á nýliðnu ári. Ég vil einnig þakka Auði Örlygsdóttur kærlega fyrir samstarfið sem ritari okkar.