Evrópuráðsþingið 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Helga Pálmasyni fyrir góða yfirferð á störfum hans fyrir hönd Íslands á vettvangi Evrópuráðsins. Ég held að fólk átti sig ekki á því í stóra samhenginu hversu mikilvægt það er að við höfum öfluga málsvara á þessum vettvangi sem er grundvöllur allra þeirra raunverulegu réttarbóta sem við höfum komið í kring, t.d. íslenskum stjórnskipunarrétti á sviði mannréttinda.
Ég ætla að vera á mannréttindatengdum nótum í andsvörum mínum við hv. þingmann og spyrja hann sérstaklega út í Istanbúl-samninginn, sem hann nefndi hér í ræðu sinni um vernd gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi. Við vitum að Istanbúl-samningurinn hefur verið til umræðu á alþjóðavettvangi, sérstaklega hér í Evrópu, í tengslum við hugsanlega úrsögn Letta úr samningnum, sem hefur verið til umræðu á þarlendu þjóðþingi og er í ákveðinni biðstöðu. Við vitum að við tölum gjarnan um það í evrópsku samhengi, og sérstaklega í norrænu og baltnesku samhengi, að við deilum svipuðum gildum. Þess vegna höfum við í Norðurlandaráði vakið máls á því að það þýðir ekki bara að tala um þessi gildi, þau eru ekki bara orð á blaði. Við verðum að standa vörð um þau og framfylgja þeim. Telur hv. þingmaður ástæðu til að lyfta þessum málaflokki frekar á loft, þ.e. í tengslum við varnar- og öryggismál? Vegna þess að öryggismál eru ekki bara kaup á vopnum, þau eru líka raunveruleg réttarvernd fólks á heimilum sínum. Þeirri staðreynd að konum stendur hvergi meiri ógn gagnvart öryggi sínu en á heimili sínu er ekki haldið mjög mikið á lofti. Telur hv. þingmaður ástæðu til að beita sér sérstaklega fyrir virkri réttarvernd á grundvelli Istanbúl-samningsins, sem á sér uppruna á vettvangi Evrópuþingsins, og þá með hvaða hætti?