157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Evrópuráðsþingið 2025.

397. mál
[14:55]
Horfa

Frsm. ÍÞER (Sigurður Helgi Pálmason) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Á Evrópuráðsþinginu er voða lítið mál fyrir mig að tala þessu máli því að í grunninn tel ég að allir eigi að eiga sama rétt á því að vera hamingjusamir. Það er í raun og veru það sem ég hef alltaf staðið fyrir. Það sem ég myndi aftur á móti vilja efla og ég held að væri hægt að gera, er þetta samtal okkar þingmanna hérna inni á Alþingi, þ.e. að við náum að koma okkur saman um og fara yfir hvað er að gerast í öllum þessum alþjóðanefndum. Ég held að það væri góð leið til að koma skilaboðum áfram á ólíka staði. Ég held að allir sem eru hérna inni, af því að það er oftast góð eining á milli þeirra þingmanna sem eru í þessu starfi — að við eigum bara að koma því út í heim.