Evrópuráðsþingið 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir spurninguna. Já, Grænland var svo sannarlega rætt núna í síðustu þingviku. Það var sérstök umræða sem var sett af stað og þar kom í raun og veru í ljós bara að Evrópa stendur á bak við Grænland og Konungsríkið Danmörku. Grænlendingar eru náttúrlega ekki á Evrópuráðsþinginu, það eru Danir sem eru þar, en skilaboðin voru mjög skýr og eins skýr og mögulegt er. Ég átti í góðum samskiptum við þingmenn frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Eystrasaltsríkjunum og þar var þessi samstaða og eins og ég var að nefna áðan þá voru bara mjög góð samtöl á milli okkar, líka fyrir þingvikuna, um Grænland og við ætluðum að koma þessu á dagskrá sem var síðan gert.