157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Evrópuráðsþingið 2025.

397. mál
[14:59]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans svar. Mig langar þá að spyrja hann að öðru og það snýr að Úkraínu. Mig langar að spyrja hvort hans tilfinning sé að Evrópuráðsþingið standi heilt á bak við Úkraínu eða hvort hann hafi orðið var við að ákveðin öfl séu meira tvístígandi. Þetta er auðvitað þing þar sem eru ekkert endilega allir sammála, það eru „representaraðar“ fjölbreyttar hreyfingar þarna af fulltrúum þjóðþinga Evrópu. Getur hann gefið mér sína innsýn í það hvort það sé sami einhugur þar að baki og hefur verið undanfarin ár í stuðningi við Úkraínu? Ég veit að hv. þingmaður hefur, sem hluti af starfi hans á Evrópuráðsþinginu, heimsótt Úkraínu og vil spyrja hvort hann sé kannski til í að deila þeirri reynslu sinni með þingheimi og hvort hún hafi haft einhver áhrif á hann og hans afstöðu og sýn á þessi mál.