157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Evrópuráðsþingið 2025.

397. mál
[15:00]
Horfa

Frsm. ÍÞER (Sigurður Helgi Pálmason) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir seinni spurninguna. Ég ætla að byrja á því að ræða kannski bara þessa ferð mína þarna út sem var í raun og veru vegna tengslanets þingmanna, þegar ég ræddi við úkraínsk börn sem hefur verið rænt af Rússum. Ég get alveg sagt það að ég kom ekkert samur heim úr þessari ferð, bæði það að hitta þessi börn sem höfðu upplifað þessar hörmungar að hafa verið rænt af heimili og sett í ákveðnar búðir, fangabúðir, og í raun og veru mjög ung sett í nánast herskyldu. Ég átti samtal við einn ungan strák sem var 16 ára og ég átti ofboðslega erfitt með að fara ekki bara að gráta því að saga hans — það er hryllingur hvað er verið að gera við þessi börn. Ég kom ekki til baka, ég veit ekki hvernig maður á að segja þetta, fullur bjartsýni en ég kom alla vega til baka með þann neista að reyna að gera allt í mínu valdi til að aðstoða í þessum málaflokki.

Varðandi Úkraínu á Evrópuráðsþinginu þá finnur maður fyrir því, og meira að segja Úkraínumenn tala um það, að þeir eru svona, eins og einn orðaði það, að færast neðar og neðar í fréttunum. Þetta er svona endurtekning á fréttum og þeim finnst eins og þetta sé ekki að ná í gegn. En það er einhugur um, fyrir utan einhverja aðila, að styðja við bakið á Úkraínu. En við sjáum það bara sjálf að Úkraína hefur færst neðar í fyrirsögnum.