NATO-þingið 2025.
Virðulegur forseti. Ég mun í stuttu máli gera grein fyrir helstu málum í brennidepli á liðnu ári í NATO-þinginu en þar gegni ég formennsku Íslandsdeildar. Ársskýrsla Íslandsdeildar fyrir árið 2025 gerir störfum þingmannanefndarinnar og NATO-þingsins ítarleg skil en hér er aðeins ætlunin að stikla á stóru og ég vísa að öðru leyti í skýrsluna sem mælt er fyrir.
NATO-þingið er þingmannasamtök sem hefur allt frá árinu 1955 verið vettvangur þingmanna aðildarríkja NATO til að ræða öryggis- og varnarmál. Síðastliðið ár markaði 70 ára afmæli þingmannasamkundunnar. Á síðustu árum hefur aðildar- og aukaaðildarríkjum NATO-þingsins fjölgað ört og starfssvið þess verið víkkað. Störf þingsins beinast í auknum mæli að öryggismálum Evrópu í heild, efnahagslegum og pólitískum áskorunum í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og hinu hnattræna öryggiskerfi.
Helsta markmið NATO-þingsins er að efla samstöðu og samráð þjóðþinga á sviði öryggis- og varnarmála. Aðild að NATO-þinginu áttu í lok árs 2025 32 þjóðþing en að auki sóttu þingmenn frá aukaaðildarríkjum NATO-þingsins, samstarfsríkjum á Miðjarðarhafssvæðinu og áheyrnarríkjum NATO þingfundi ársins. Þingið kemur saman tvisvar á ári, til vorfundar og ársfundar að hausti. Jafnframt halda nefndir og undirnefndir þingsins reglulega málstofur og fundi utan þingfunda auk þess sem stjórnarnefnd fundar einu sinni á ári utan hefðbundinna þingfunda eða nefndarfunda.
Þann 4. febrúar 2025 voru eftirfarandi aðalmenn kosnir í Íslandsdeild NATO-þingsins: Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, varaformaður, Sigmar Guðmundsson, auk þess sem hér stendur en ég var kjörinn formaður. Varamenn eru Njáll Trausti Friðbertsson, Grímur Grímsson og Víðir Reynisson. Njáll Trausti gegndi jafnframt stöðu aðalframsögumanns vísinda- og tækninefndar fram að ársfundi NATO-þingsins í Ljúblíana í október en þá var Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir kjörin í hans stað.
Íslandsdeild hélt 11 fundi á árinu, bæði til undirbúnings fyrir þátttöku á fundum erlendis og eins til þess að ræða áfallaþol og öryggismál hér á landi með heimsóknum og samtölum við lykilaðila sem koma að því.
Starfsemi NATO-þingsins á alþjóðavettvangi fer að mestu fram í fimm málefnanefndum; stjórnmálanefnd, varnar- og öryggismálanefnd, efnahagsnefnd, vísinda- og tækninefnd og nefnd um lýðræði og öryggi. Auk þess fer mikið starf fram á vegum Miðjarðarhafshópsins. Þessar nefndir eru meginvettvangur umræðna, þær fjalla um samtímamál sem koma upp á starfssviði þeirra og vinna um þau skýrslur og tilmæli eða ályktanir sem nefndin samþykkir og þingið greiðir síðan atkvæði um. Tilmælum er beint til Norður-Atlantshafsráðsins, sem fer með æðsta ákvörðunarvald innan NATO, og í þeim er hvatt til tiltekinna aðgerða. Ályktunum þingsins er hins vegar beint til ríkisstjórna aðildarríkjanna.
Þótt NATO-þingið sé að formi til óháð NATO hafa samskipti þess við bandalagið smám saman tekið á sig fastara form. Á meðal formlegra samskipta má í fyrsta lagi nefna formleg svör við tilmælum þingsins frá framkvæmdastjóra bandalagsins fyrir hönd NATO. Í öðru lagi flytur framkvæmdastjóri bandalagsins ávarp á vorfundum og ársfundum NATO-þingsins og svarar fyrirspurnum þingmanna og í þriðja lagi koma stjórnarnefnd NATO-þingsins og Norður-Atlantshafsráðið árlega saman til fundar í höfuðstöðvum NATO í Brussel.
Virðulegi forseti. Á vettvangi NATO-þingsins árið 2025 var umræða um varanlegan og réttlátan frið í Úkraínu áfram í brennidepli ásamt umræðu um mikilvægi samstöðu bandalagsríkja í að standa vörð um sameiginlegt öryggi. Í því samhengi var lögð áhersla á að efla fælingarmátt og varnargetu bandalagsins, m.a. með því að standa við skuldbindingar um aukin fjárframlög til varnarmála. Einnig var horft til framtíðar og þá ekki síst með tilliti til þess hvernig undirbúa megi bandalagið fyrir aukna notkun dróna og áskoranir ómannaðs hernaðar. Lýðræði var einnig ofarlega á baugi og sjónum beint að viðnámsþrótti samfélaga og hvernig sporna megi gegn óvinveittum erlendum afskiptum af lýðræði. Þá var kastljósinu einnig beint að efnahagsáskorunum og mikilvægi samstarfs aðildarríkja þvert á Atlantsála.
Á vorfundi NATO-þingsins í Dayton í Ohio í maí setti umfjöllun um Dayton-friðarsamninginn svip sinn á þingið en 30 ár voru þá liðin frá friðarviðræðunum á Wright-Patterson flugherstöðinni nærri Dayton í nóvember 1995. Samningurinn batt enda á stríðið í Bosníu sem hafði þá staðið í um þrjú og hálft ár. Þá markaði fundurinn einnig 70 ára afmæli NATO-þingsins en þingið kom saman í fyrsta skipti 18.–21. júlí 1955 í þáverandi höfuðstöðvum NATO í Palais de Chaillot í París. Tvær yfirlýsingar voru samþykktar á fundinum, annars vegar tilmæli þingsins fyrir leiðtogafundinn í Haag og hins vegar yfirlýsing um forsendur friðar í Úkraínu. Skilaboð þingsins til leiðtoga bandalagsins voru að efla þyrfti enn frekar fælingarmátt og varnir bandalagsins, m.a. með því að styrkja hernaðarlegt, tæknilegt og iðnvætt forskot NATO með aukinni fjárfestingu í varnarmálum og sanngjarnari dreifingu á byrðum og ábyrgð milli Evrópu og Norður-Ameríku. Í yfirlýsingunni um Úkraínu var m.a. lögð áhersla á að viðhalda og efla enn frekar stuðning NATO við Úkraínu, bæði á vígvellinum og eins til þess að mæta brýnum þörfum almennra borgara. Þá lagði þingið einnig áherslu á að styrkja stöðu Úkraínu við samningaborðið.
Á fundum fimm fastanefnda NATO-þingsins voru rædd drög að 16 skýrslum þar sem fjallað var um fjölbreytt málefni, allt frá ógninni sem stafar af aukinni samvinnu einræðisríkja, stöðu lýðræðis, netógnum og upplýsingaóreiðu til ómannaðs hernaðar og öryggis í geimnum. Í skýrslunum birtist jafnframt áhersla á svæði sem þjóna mikilvægum öryggishagsmunum fyrir bandalagið, þ.e. norðurslóðir, Svartahafið og Indó-Kyrrahafssvæðið, auk Mið-Austurlanda, Afríku og Vestur-Balkanskaga.
Sameiginlegur fundur stjórnmálanefndar og öryggis- og varnarmálanefndar NATO-þingsins fór fram hér á landi dagana 2.–4. júlí en nefndarfundurinn hófst mánudaginn 30. júní í Kaupmannahöfn og þaðan héldu nefndarmenn til Þórshafnar í Færeyjum. Tilgangur fundarins var m.a. að fræðast um og ræða öryggismál á norðurslóðum, samstarfið við NATO, eftirlit um GIUK-hliðið, þ.e. hafsvæðið milli Grænlands, Íslands og Bretlands, nýjustu aðgerðir á sviði orkumála, áhrif loftslagsbreytinga á öryggi á norðurslóðum og opnun siglingaleiða, m.a. út frá auknum áhuga kínverskra stjórnvalda á svæðinu. Þingmenn funduðu hér á Alþingisreitnum en fóru einnig í vettvangsferðir og skoðuðu Reykjanesvirkjun, Teledyne Gavia, sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á sjálfvirkum neðansjávarfarartækjum, og öryggissvæðið í Keflavík. Meðal þess sem kom fram í erindum og umræðum voru áhrif allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu á samstarfið á norðurslóðum og mögulegar afleiðingar áframhaldandi loftslagsbreytinga fyrir öryggi á svæðinu. Þingmenn fengu einnig innsýn í helstu stoðir Íslands í varnarmálum, þær breytingar sem átt hefðu sér stað í kjölfar brotthvarfs bandaríska hersins árið 2006 og áhrif bæði innlimunar Rússlands á Krímskaga og allsherjarinnrásarinnar í febrúar 2022 fyrir samstarf Íslands við bandalagsríki og þátttöku þeirra í varnartengdri starfsemi hér á landi.
Virðulegi forseti. Ársfundur NATO-þingsins var haldinn í Ljúblíana í Slóveníu dagana 10.–13. október. Helstu umfjöllunarefni fundarins voru áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, styrking fælingarmáttar og varnargetu bandalagsins, sérstaklega á austurvængnum, og aukin framlög til varnarmála. Þingið hvatti aðildarríki til að uppfylla eigin skuldbindingar um að verja að lágmarki 5% af vergri landsframleiðslu bæði til kjarnaþarfa í varnarmálum og annarra öryggis- og varnartengdra útgjalda eigi síðar en árið 2035. Sérstök áhersla var lögð á uppbyggingu loft- og eldflaugavarna, harðari refsiaðgerðir gegn Rússlandi og fjárfestingar í nýrri tækni, ekki síst ómönnuðum kerfum. Ítrekað kom fram að aukin samvinna einræðisríkja, örar tæknibreytingar og fjölþáttaógnir krefðust öflugra viðbragðs og samvinnu af hálfu NATO-ríkja.
Njáll Trausti Friðbertsson kynnti skýrslu sína um breyttar öryggisáskoranir á norðurslóðum í vísinda- og tækninefnd. Í skýrslunni var norðurslóðum lýst sem svæði mikilla umbreytinga. Umhverfið væri að taka örum breytingum vegna loftslagsbreytinga, bráðnunar íss og opnunar nýrra siglingaleiða en að auki gætti einnig vaxandi samkeppni stórvelda. Norðurslóðir gætu því ekki lengur talist afmarkað jaðarsvæði utan alþjóðastjórnmála heldur væru þær í vaxandi mæli orðnar mikilvægur þáttur í sameiginlegu öryggissvæði Evrópu og Norður-Ameríku. Þá var lögð áhersla á nauðsyn samræmdrar nálgunar innan NATO, aukinnar yfirsýnar yfir þróun mála og markvissrar nýtingar nýrrar tækni, m.a. á sviði gervihnatta, skynjara og ómannaðra kerfa. Jafnframt var varað við því að viðbrögð bandalagsins yrðu sundurlaus nema mótuð yrði skýr heildarstefna eða komið á samhæfingarvettvangi um málefni norðurslóða.
Þá gaf NATO-þingið út fjölda málefnaskýrslna og ályktana á árinu sem nálgast má á vefsvæði NATO-þingsins.
Eins og áður sagði er gerð grein fyrir stöfum Íslandsdeildar á vettvangi NATO-þingsins í fylgiskjölum skýrslu þeirrar sem hér er mælt fyrir og vísa ég til hennar varðandi frekari upplýsingar.
Ég held að reynslan af því að vera á NATO-þinginu síðastliðið ár undirstriki mikilvægi samtals og skoðanaskipta þingmanna. Ég held að samtölin, ekki síður en hinir formlegu fundir, hafi aldrei verið mikilvægari og veita einstaka innsýn í umræður í mismunandi bandalagslöndum sem deila mörgum áskorunum með okkur en öðrum ekki og það getur verið jafn fróðlegt að kynnast því sem skilur að eins og hinu sem við eigum sameiginlegt. Það er þess vegna gríðarlega mikilvægt að taka þátt á þessum vettvangi, sérstaklega nú þegar varnar- og öryggismál eru í mikilli deiglu og þróunin er ekki öll á einn veg. Á fyrsta fundi sem ég sótti sem formaður Íslandsdeildar fyrir rétt um ári síðan var í raun spennuþrungið andrúmsloft. Þetta var skömmu eftir að Trump Bandaríkjaforseti hafði tekið við, látið orð falla um Kanada sem leiddi til þess að málin voru rædd býsna opinskátt og þar er ekki verið að rjúfa neinn trúnað vegna þess að viðkomandi fulltrúar úr kanadísku sendinefndinni hafa opinberað þær býsna beinskeyttu athugasemdir sem þeir höfðu við málflutning Bandaríkjaforseta og það mátti nánast skera loftið í salnum og augljóst að þingmenn voru enn þá að fóta sig eða byrja að fóta sig í nýju umhverfi. Það var strax ljóst, alla vega í mínum huga, að málefni Grænlands gætu runnið eftir svipaðri slóð og það hefur komið á daginn. Þó að sumt í þeim málum einkennist af því að þjóðþingin koma ekki með beinum hætti að yfirlýsingum eða einstökum umfjöllunarefnum eða álitaefnum eins og yfirlýsingum um Grænland og Kanada nema þá óbeint eða eftir á, þá er að mínu mati þingmannavettvangur eins og þessi ómetanlegur.
Stjórnarnefnd NATO-þingsins eða kjarni hennar sendi frá sér sérstaka ályktun um málefni Grænlands sameiginlega þann 22. janúar síðastliðinn þar sem stuðningur við fullveldi og sjálfstæði Danmerkur og Grænlands var undirstrikaður, undirstrikað mikilvægi samstöðu og samvinnu til að tryggja varnir þvert yfir Atlantshafið og minnt á það að, kannski í íslenskri þýðingu. diplómasía þingmanna skiptir mjög miklu máli. Ég veit ekki, virðulegur forseti, hvort maður komist upp með það að segja diplómasía í sölum Alþingis. Halldór Kiljan Laxness hefði án efa komist upp með það, en ég bið um leyfi forseta til að nota þetta orð. Samtöl og samstaða þingmanna þvert á bandalagsþjóðir getur skipt máli til að koma sameiginlegum skilaboðum til ríkisstjórna og þá meina ég allra ríkisstjórna innan NATO. Undir þessa ályktun skrifa stjórnarmenn í framkvæmdastjórn NATO-þingsins, þar á meðal formaður bandarísku landsdeildar NATO-þingsins, sem fyrir ári síðan hefði kannski ekki verið svo sjálfsagt að væri þarna á blaði með öllum hinum. En þetta er þá alla vega skýrt. Fjórum dögum síðar barst sérstakt svar frá dönsku landsdeildinni þar sem tekið er að mörgu leyti undir andann í skilaboðum stjórnarinnar og útlistaðar bæði aðgerðir og stefna Dana og Grænlendinga, viðhorf þeirra til þessarar umræðu, um leið og aukinni áherslu á norðurslóðir og sameiginlegar varnir á norðurslóðum er fagnað. Þar get ég tekið hjartanlega undir, eins og með fyrri ályktunina. Ég get vottað það að þegar ég var að spyrja framkvæmdastjóra NATO í opnum fyrirspurnatíma á vorfundi út í norðurslóðamálin, þá var að skynja á svarinu að það væri áhugi en það væri kannski ekki mjög mikið starf hafið. Það hefur bara gjörbreyst á þeim stutta tíma sem ég hef verið á þessum vettvangi, þetta eina ár, athyglin hefur augljóslega færst mjög yfir á þetta svæði og má búast við því að vinnunni sem varðar norðurslóðir verði sinnt af enn meiri þrótti. Við höfum verið að ræða það milli landsdeilda sem tengjast norðurslóðum að setja jafnvel upp sérstaka nefnd sem myndi horfa á norðurslóðir, svipað og gildir um Miðjarðarhafssvæðið, en það hefur ekki enn þá verið ráðið til lykta.
Ég læt þessu lokið um frásögn af starfi innan NATO-þingsins síðasta ár.