157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

NATO-þingið 2025.

405. mál
[15:39]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og skýrsluflutninginn. Ég bað um andsvar í fyrri hluta ræðunnar því að mig langaði að heyra afstöðu hv. þingmanns til Grænlandsmálsins og hvort og hvernig það hefði verið rætt á þeirra vettvangi. Ég heyrði það nú kannski síðar í ræðunni. En mig langar að biðja hv. þingmann um að upplýsa okkur aðeins meira um það hvernig orðræðan er hjá bandarískum þingmönnum. Nú er það engin launung að í svolítinn tíma hafa verið sögusagnir um að einhverjir í Washington séu á því að NATO skipti þá ekki máli og jafnvel er gengið svo langt að segja að Bandaríkjamenn myndu mögulega bara segja sig frá NATO. Ég held að við vitum öll hvað það myndi á endanum þýða fyrir NATO. Mig langaði að heyra frá hv. þingmanni hvernig hann metur orðræðu Bandaríkjamanna, sem sækja NATO-þingið, varðandi framtíð NATO, mikilvægi NATO, bæði fyrir Bandaríkjamenn og fyrir Evrópu.

Grænlandsmálið er auðvitað mjög sérstakt mál og ég er fegin að heyra af þeirri yfirlýsingu sem gefin var þar að lútandi og ég held að það sé mikilvægt að það hafi verið gert. Ég er ein af þeim sem hafa haft trú á bandaríska þinginu, að það sé ekki bara einn maður sem tali fyrir hönd allrar þjóðarinnar þó að hann hafi verið kosinn forseti og þess vegna sé mikilvægt að þingmenn séu virkir í sinni orðræðu. Sjálf hef ég átt nokkur samtöl við Lisu Murkowski, öldungardeildarþingmann frá Alaska, sem ég vil meina að sé sá öldungardeildarþingmaður sem þekkir raunverulega til norðurslóða og norðurslóðamála, kona sem er búin að vera lengi á þingi fyrir hönd Alaska og berjast fyrir því að keyptir séu ísbrjótar og fjallar raunverulega um þau mál sem þar eru undir.

Mig langar aðeins að heyra frá hv. þingmanni hvernig bandarískir kollegar hans ræða þetta á NATO-þinginu.