NATO-þingið 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held að það sé einmitt rétt sem hv. þingmaður segir, að það sé ekki endilega hægt að lesa í mætingu bandarískra þingmanna. Ég þekki það líka frá ÖSE-þinginu. Þetta er einmitt alltaf haldið um helgar og aðalfundir í júlí þegar þing eru ekki að störfum. Það er nú yfirleitt þannig að bandarískir þingmenn sækja síður þessar alþjóðasamkundur en það er þá þeim mun mikilvægara þegar þeir gera það, að þeir tjái sig og að þetta samtal eigi sér stað.
Ég ætla að brýna hv. þingmann áfram í því, eins og ég hef gert hér og ég gerði gagnvart samstarfsráðherranum fyrr í dag, að við séum sannir talsmenn fyrir vini okkar hinum megin, Grænland. Mér finnst hafa verið góður hljómur í því bæði hvernig þingmenn og ráðherrar hafa talað. Ég held að þessi óútskýrða og óásættanlega orðræða um Grænland lýsi engu að síður mikilvægi norðurslóða. Þegar kemur að norðurslóðum þá eigum við Íslendingar að tala hátt og skýrt um mikilvægi þess að við stöndum með líkt þenkjandi þjóðum á þessu svæði.
Ég fagnaði því líka að heyra í ræðu hv. þingmanns að umræðan um norðurslóðir væri kannski orðin meiri innan NATO-þingsins því að það held ég að sé mjög mikilvægt fyrir okkur. Það er mikilvægt fyrir öryggi okkar Íslendinga en það er ekki síður mikilvægt fyrir öryggi Bandaríkjamanna.
Spurningin mín er, ef hv. þingmaður vill fara aðeins meira út í það: Hvað er verið að ræða varðandi norðurslóðir? Er það frekari aðstaða á Grænlandi? Er það frekari vígbúnaður? Það hefur náttúrlega líka verið stefna norðurslóðaríkja að (Forseti hringir.) vilja sjá frið og öryggi og síður vígbúnað en því miður hefur það bara ekki verið reyndin á síðustu árum.