157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

NATO-þingið 2025.

405. mál
[15:45]
Horfa

Frsm. ÍNATO (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, það er áhugavert að við erum að fara á fund í Brussel bara eftir tíu daga þar sem allar lykilnefndir og stjórnarnefndin koma. Við eigum líka fund með Norður-Atlantshafsráðinu og ég efast ekki um að Grænland muni bera þar á góma. Við höfum auðvitað verið í mjög þéttu sambandi við Norðurlöndin og fulltrúa dönsku landsdeildarinnar á NATO-þinginu. Danir hafa líka verið með sína nálgun sem hefur aðeins breyst eftir því sem málinu hefur undið fram og við höfum ekki stigið fram fyrir þau í því heldur fylgt þeirra takti en verið alveg skýr, við höfum markvisst verið að kalla eftir og spyrja eftir áherslum á norðurslóðir. Til að ramma inn sýnina og það sem þarf að gera og þær miklu breytingar sem þar eru þá bendi ég á skýrslu vísinda- og tækninefndar, sem Njáll Trausti Friðbertsson leiddi, því að þar er mjög góð kortlagning á því sem þarf að huga að og byggja upp. En það þarf helst að vera í samstarfi margra og sem allra flestra og ekki í þessum átakafasa milli bandamanna sem verið hefur.