NATO-þingið 2025.
Virðulegur forseti. Stutta svarið er já. Fljótlega eftir að ég hóf þátttöku í þessu samstarfi áttaði ég mig á því að einar öflugustu viðbragðssveitirnar sem væru kannski líklegastar til að koma einna fyrstar til skjalanna ef eitthvað myndi gerast í kringum Ísland væru JEF, sem eru undir forystu Breta, með þátttöku Hollendinga og Norðurlandanna. Ég átti sérstaka tvíhliða fundi með Bretum til þess bara að fara yfir þeirra sýn. Ég hef líka rætt við þingmenn frá öðrum þjóðum en harðasti kjarninn, þ.e. reglulegustu fundirnir eru með NB8-ríkjunum, þ.e. Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Við fundum í tengslum við þessa stóru reglulegu fundi en á síðasta fundi buðum við líka formönnum landsdeilda Þýskalands og Póllands til þess aðeins að stækka hópinn og því var mjög vel tekið og undirstrikar kannski að fólk sér svolítinn styrk í því. Ég tengi það líka við viðbótina Finnland og Svíþjóð í NATO, fólk sér styrk í því að hugsa um Norður-Evrópu sem eitt svæði sem þurfi að verja sameiginlega og að þessar þjóðir vinni sem mest og best saman í að byggja sig upp og þjálfa o.s.frv. Það eigum við líka að hafa í huga þegar við erum að hugsa um okkar nærsvæði.