ÖSE-þingið 2025.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og formanni Íslandsdeildar ÖSE-þingsins, Örnu Láru Jónsdóttur, kærlega fyrir hennar ræðu. Ég er einn af þeim þingmönnum sem eru hluti af Íslandsdeild ÖSE og hef sótt þrjá fundi á árinu, auk þess sem ég var fulltrúi í Íslandsdeild ÖSE-þingsins þegar ég sat á þingi hér fyrir hartnær níu árum síðan. ÖSE er eðli sínu samkvæmt ekki samtök líkt þenkjandi ríkja. Hún er búin til sem alþjóðastofnun þar sem ólíkt þenkjandi ríki koma saman. Þau voru líklegast enn meira ólíkt þenkjandi þegar ÖSE var sett á fót á tímum kalda stríðsins þannig að það eru kannski aðeins aðrar áherslur hvað það varðar en engu að síður nauðsynlegt og fróðlegt og þeim sem hér stendur finnst gagnlegt að fara á þingmannaráðstefnur þar sem við hittum líka þingmenn sem koma frá mjög fjölbreyttum löndum og kynnumst ólíkum viðhorfum.
Þegar kemur að þátttöku þess sem hér stendur á þessum þingum þá hef ég viljað nota þær ræður sem ég hef flutt á þingunum, ef við tölum um þann opinbera hluta, til að árétta afstöðu Íslands í hinum og þessum málum, vekja athygli þingmanna á hlutum sem eru að gerast hér á Íslandi og einnig árétta okkar stefnu í mörgum málum sem varða samskipti þjóða. Ég vil t.d. nefna það að á vetrarþingi ÖSE í Vín fyrir ári síðan þá tók ég til máls í almennum umræðum og ítrekaði stuðning Íslands við Úkraínu og sagði reyndar frá því að Ísland væri þá að fara af stað með að setja sér stefnu í öryggis- og varnarmálum en ÖSE er eðli málsins samkvæmt stofnun sem veltir öryggis- og varnarmálum mikið fyrir sér. En ég ítrekaði líka gildi áframhaldandi sterkra tengsla yfir Atlantshafið, þá við Bandaríkin, og ég stend enn þá við það.
Síðan var haldinn ársfundur ÖSE í Porto og þar voru fluttar margar ræður, ýmislegt athyglisvert sem þar gerðist þó svo að því miður hafi fulltrúar Bandaríkjanna ekki komist á fundinn vegna þinganna heima fyrir. Mér þótti athyglisvert að formaður úkraínsku landsdeildarinnar, Mykyta Potúrajev, flutti þar ræðu við upphaf þingsins og, svo ég vitni hér í skýrsluna þar sem var rætt um stofnun ÖSE og Helsinki-yfirlýsinguna:
„[…] sagði að það hefði aldrei verið ætlun Sovétríkjanna að virða lokagerðina þegar þau undirrituðu hana fyrir 50 árum. Þau hafi aldrei ætlað að virða mannréttindi og á þeim tíma er lokagerðin var undirrituð hafi fólk verið fangelsað í Síberíu. Sovétríkin hafi viljað að Evrópa væri örugg svo að þau gætu einbeitt sér að öðrum heimshlutum. Rússland sé arftaki Sovétríkjanna og sé eins, Rússar brjóti niður vilja fólks og virði ekki mannréttindi. Samþykkt ályktunarinnar væri því mikilvæg til að undirstrika mikilvægi gilda Helsinki-lokagerðarinnar og sýna að þau eigi enn við.“
Mér finnst ágætt að svona sjónarmið komi stundum fram vegna þess að auðvitað á fólk svolítið til stundum, þegar það heldur upp á afmæli, eins og þarna, 50 ára afmæli, að draga fram mjög ljósrauða mynd af uppruna einhverra hugmynda. Mér er minnisstætt þegar maður fór fram á gang á þessu þingi í Porto og sá myndir af stofnfeðrum ÖSE-þingsins, þar sem voru Ceau?escu og Brezhnev og aðrar týpur sem kannski (Gripið fram í.) — já, og Geir Hallgrímsson. Ég vildi nú reyndar setja punkt þarna á milli áður en ég myndi nefna hann, takk fyrir ábendinguna. Auðvitað voru bæði vestrænir leiðtogar en líka fólk sem við myndum í daglegu máli kalla einfaldlega harðstjóra í harðstjórnarríkjum þannig að það er svolítið uppruninn, þarna eru kannski Vesturveldin og Austurveldin á norðurhveli jarðar að koma saman til að finna einhvern vettvang til að ræða um ýmis mál, ræða um mannréttindi án þess að ræða um lýðræði í sömu andrá o.s.frv., þannig að það er kannski líka svolítill uppruni sem er vert að hafa í huga.
Mig langar að nefna nokkra hluti sem ég hef lagt áherslu á á þessum þingum. Á ársfundinum í Porto var samþykkt mjög góð tillaga frá fulltrúa í finnsku landsnefndinni um öryggi hafsvæða. Ég tók þar til máls og tók undir þessa tillögu, að hún væri góð og með hliðsjón af okkar mikilvægu innviðum og því hvað hafið skiptir okkur miklu máli. Ég tók einnig til máls í umræðum um Moldóvu, sérstökum umræðum á þinginu þar sem ég í rauninni hrósaði Moldóvu fyrir þá viðleitni sína að leyfa þjóðinni að taka ákvörðun um framhald þegar kemur að skrefum þeirra í átt að Evrópusambandinu. Nú hafa Moldóvar kosið í nokkur skipti í kosningum þar sem þær snúast beinlínis um Evrópuvegferðina, síðast í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þessari ákvörðun um hvort halda eigi áfram viðræðum við Evrópusambandið var komið fyrir í stjórnarskrá. Ég tek fram að ég hef heimsótt Moldóvu og tel að það sé mjög forvitnilegt að fylgjast með því sem er að gerast í því ríki og vegferð þess í átt til þess að festa sig í sessi sem vestrænt lýðræðisríki.
Á þessu þingi voru umræður um mannréttindi og ferðafrelsi og ég tók þar þátt í umræðum um ferðafrelsi fólks og vakti athygli á réttindum trans fólks en nýlegar reglur í sumum aðildarríkjum ÖSE gera það að verkum að það er ekki tekið mark á því þegar fólk breytir um skráningu kyns í ferðaskilríkjum sem gerir það að verkum að fólk á það á hættu að teljast vera sekt um skjalafals ef það ferðast til landa með vegabréfið sem ríki þess hefur gefið út, og ég vildi vekja athygli á því.
Það má líka nefna dálítið fréttnæmt, á þessu þingi var samþykkt ályktun um stuðning við tveggja ríkja lausn sem er nokkuð sögulegt að ég hygg hjá ÖSE.
Ég vil líka nefna að á síðasta þingi, sem var í Istanbúl, var ýmislegt til umræðu og ég tók þar til máls og undirstrikaði stuðning Íslands við málstað Úkraínu. Umræðan var stundum svolítið sú að það væri skortur á trausti á alþjóðalögum og eins og sá skortur hafi bara birst úr engu. En skorturinn stafar náttúrlega af því að stórveldi eins og Rússland hafa getað farið fram með ofbeldi gagnvart sínum nágrönnum án þess að við því hafi verið brugðist með þeim hætti að það sé komið í veg fyrir það og skortur á trausti er að mínu mati bara afleiðing af því.
Síðan vil ég nefna að það voru einnig umræður á því þingi um válynda tíma í milliríkjaviðskiptum og þá tók ég til máls og lýsti yfir þeim fjölmörgu fríverslunarsamningum sem Ísland hefur gert undanfarið og beindi líka orðum mínum til þeirra þingmanna sem koma frá ríkjum Evrópusambandsins og hélt til haga þeim sjónarmiðum að Ísland teldi að nýlegar verndaraðgerðir á kísiljárn og járnblendi samræmdust ekki EES-samningnum. Við ræddum þetta líka utan dagskrár, ég og fulltrúi norskra þingmanna á þinginu, þannig að þessum sjónarmiðum var haldið til haga þarna eins og á öðrum vettvangi.
Næst er fundur í Vín í lok þessa mánaðar og þar verður örugglega margt til umræðu. Kannski verður aðeins að koma í ljós hvaða hlutverk ÖSE verður ætlað. Segjum að það komi til þess, sem við vonum, að það verði endir á þessu stríði, þessari innrás Rússlands í Úkraínu. Þá gæti verið að ÖSE sé ein af þeim stofnunum sem hefði einhverju hlutverki þar að gegna. En það verður að koma í ljós vegna þess að maður finnur líka að sökum þess að Rússar eru enn þá — þótt þeir séu ekki hluti af ÖSE-þinginu, sendi ekki þangað fulltrúa — hluti af Öryggis- og samvinnustofnuninni og það er þá eðlilega tortryggni þegar kemur að því að fela Öryggis- og samvinnustofnuninni eitthvert hlutverk þegar kemur að því að t.d. tryggja hugsanlegt vopnahlé eða eitthvað meira.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir góða umræðu sem hér hefur komið og ég hef lokið máli mínu.