157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

útgjaldavöxtur og hagstjórn.

[15:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir þessa spurningu og það er ágætt að fá tækifæri til að svara henni. Ég vil geta þess, svo ég fari strax í þessa bábilju sem alltaf er haldið fram, og ég velti alltaf fyrir mér þessari framsetningu, 143 milljarðar í viðbótaraukningu, að menn halda greinilega að því oftar sem þessu er haldið fram verði sannindin meiri. Það er eins og það sé aldrei litið á það að þessi ríkisstjórn fór m.a. í það sem fyrri ríkisstjórn tókst ekki að gera og leysa, til að mynda ÍL-sjóðinn sem var upp á tugi milljarða. Þessi ríkisstjórn hefur m.a. þurft að setja inn í útreikninga sína ýmsa aðra þætti sem fyrri ríkisstjórn tókst ekki að leysa og svo vil ég minna á að hefðbundnar verðlagsbreytingar eru stór hluti af þessari fjárhæð, þannig að rétt skal vera rétt.

Ég verð að segja að yfir heildina — við sjáum það einmitt ef álit Seðlabankans er lesið ítarlega og það er það sem þessi ríkisstjórn verður að halda áfram að gera, þ.e. að styðja Seðlabankann við það að berjast við verðbólguna. Það er gagnkvæmni í þessu. Það skiptir máli að ríkisstjórnin og Seðlabankinn vinni í takt og það er einmitt að gerast. Af því að það er alltaf verið að þvæla um launavísitöluna vil ég líka taka fram að fyrri ríkisstjórn hækkaði bætur hraðar en sem nam launavísitölu og svo er verið að skamma þessa ríkisstjórn fyrir að reyna að ná einhverri eðlilegri brú og eðlilegum sáttum.

Síðan vil ég geta þess sem mér fannst áhugavert, að formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrirspyrjandi virðist skauta fram hjá því sem skiptir mjög miklu máli, að lánshæfismat ríkissjóðs hækkaði úr A í A+. Af hverju? Ekki út af aðgerðum síðustu ríkisstjórnar heldur einmitt út af aðgerðum þessarar ríkisstjórnar. Það er talað um stöðugleikaregluna. Það er talað um að þessi ríkisstjórn leysti ÍL-málið, hvernig hún seldi Íslandsbanka og sé með einbeittan vilja til þess að skila hallalausum fjárlögum ári fyrr en síðasta ríkisstjórn ætlaði sér að gera, (Forseti hringir.) ekki 2028 heldur 2027.