157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

greinarskrif um breytingar á lögum um almannatryggingar.

[15:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. 2. umræða um breytingar á almannatryggingalögum, þar sem á að tengja vísitölu bóta með þeim hætti sem þar er lagt til, fer fram hér á eftir. Nú ber svo við að fyrir helgi skrifuðu öflugir háskólamenn, Axel Hall, lektor í viðskipta- og hagfræði við Háskólann í Reykjavík, og Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, grein sem er ekki hægt að kalla neitt annað en neyðaróp, viðvörunarorð eins skýr og þau geta verið sett fram um það frumvarp sem hér liggur fyrir og er í raun orðið frumvarp Viðreisnar. Það er auðvitað lagt fram af hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, sem er í Flokki fólksins, en Viðreisn hefur samþykkt þetta mál eins og það liggur fyrir í gegnum ríkisstjórn þar sem ráðherrar flokksins sitja og í gegnum þingflokk Viðreisnar þar sem þingmennirnir sitja, þannig að í raun er Viðreisn nú þegar búin að samþykkja þetta mál. Nú birtast þessi varúðarorð háskólamannanna og af því að hæstv. fjármálaráðherra bendir ítrekað á að hann sé ekki kjörinn fulltrúi heldur einhvers lags fagaðili sem var fenginn til að stýra ríkissjóði, þá eru hér kollegar hæstv. ráðherra, háskólamennirnir, að vara við þeirri vegferð sem við erum á hér og munum ræða síðar í dag, með eins sterkum orðum og ég held að hægt sé að hugsa sér í þessu samhengi.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra, sem ég tel fullvíst að sé búinn að glöggva sig á efni þessarar greinar sem birtist í Vísbendingu í síðustu viku, hver afstaða hæstv. ráðherra er til þeirra sjónarmiða sem háskólamennirnir Axel Hall og Gylfi Zoëga setja fram í grein sinni og hvort hann líti svo á að Viðreisn sé búin að samþykkja málið til lokaafgreiðslu eins og það liggur fyrir eða hvort Viðreisn muni með einum eða öðrum hætti, í ljósi þeirra orða sem hafa fallið, m.a. af vörum formanns flokksins um sjálfvirkar hækkanir á fyrri stigum, stíga inn í og reyna að laga málið eða senda það til síns heima þannig að hægt sé að vinna hugmyndirnar betur.