greinarskrif um breytingar á lögum um almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er ekki útfært með neinum hætti í stjórnarsáttmálanum hvernig þessu markmiði yrði náð fram. Ég verð hér í seinni spurningu að spyrja hæstv. ráðherra áfram um þetta, svona í ljósi þess að umsagnir um þetta mál sem borist hafa hv. velferðarnefnd eru alltumlykjandi neikvæðar og vara við með einum eða öðrum hætti. Síðan hélt ég bara að þegar loksins kæmu háskólamenn og legðu til ráð sem gagn væri að, að þá næði það kannski í gegn hjá hæstv. fjármálaráðherra. Hæstv. ráðherra útskýrði það undir lok svarsins að auðvitað stæði Viðreisn við það sem samið var um í stjórnarsáttmálanum, en ég vil bara spyrja hann einfaldrar spurningar: Styður hæstv. ráðherra við þá útfærslu sem lögð er til í því máli sem hér er rætt?